Kærum vegna Arnarnesvegar vísað frá

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála kvað upp úrskurð í gær, miðvikudaginn 31. maí, vegna kæru á ákvörðun bæjarstjórnar Kópavogs frá 22. nóvember 2022 um að samþykkja umsókn Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi fyrir 3. áfanga Arnarnesvegar, frá Rjúpnavegi að Breiðholtsbraut, en þetta kemur fram á heimasíðu Vegagerðarinnar.

Það voru samtökin Vinir Kópavogs og Hollvinasamtök Elliðaárdalsins og íbúar í nokkrum húsum í Selja, Sala, Kórahverfi og Bergum sem kærðu ákvörðun Kópavogsbæjar um að samþykkja umsókn Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi fyrir Arnarnesveg, frá Rjúpnavegi að Breiðholtsbraut. 

Í úrskurðinum kemur fram að ekki sé talið að hin kærða ákvörðun um veitingu framkvæmdaleyfis fyrir 3. áfanga Arnarnesvegar sé haldin þeim form- eða efnisannmörkum að ógildingu varði og verði kröfu kærenda þar um því hafnað. 

Einnig kvað nefndin upp úrskurð vegna kæru sem barst um ákvörðun bæjarstjórnar Kópavogs frá 14. júní 2022 og ákvörðun borgarráðs Reykjavíkur frá 7. júlí s.á. um að samþykkja deiliskipulag Arnarnes­vegar, 3. áfanga, frá Rjúpnavegi að Breiðholtsbraut. Þess var krafist að ákvarðarnirnar yrðu felldar úr gildi. Í úrskurði nefndarinnar segir að hin kærða ákvörðun um deiliskipulag sé hvorki talin haldin þeim form- né efnisannörkum að ógildingu varði og kærunni er vísað frá.

Mynd: Arnarnesvegur, 3. áfangi. Séð í NA eftir nýjum Arnarnesvegi.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar