Funduðu um sjálfbærni í Kópavogi

Samráðsfundur um sjálfbærni var haldinn í Salnum í Kópavogi þriðjudaginn 18.apríl. Fundurinn er hluti af fundaröð Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra þar sem sjálfbær þróun á Íslandi er til umfjöllunar.
Fundirnir eru með svonefndu þjóðfundarsniði, forsætisráðherra flytur opnunarávarp, stutt erindi eru frá sérfræðingur og þá er fundargestum skipt upp í umræðuhópa sem fjalla um einstök viðfangsefni.

„Ísland hefur alla burði til að vera leiðandi í að innleiða heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og ná fram raunverulegum árangri á sviði sjálfbærrar þróunar. Þar er raunhæf stefna auðvitað undirstaðan og ég hlakka til að sjá niðurstöður þeirrar vinnu sem nú er framundan og mun byggja á víðfeðmu samráði um landið allt,“ segir Katrín Jakobsdóttir en framundan eru sex fundir, þar af einn fjarfundur fyrir allt landið.

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs var fundarstjóri á fundinum og lýsti yfir ánægju með staðarval forsætisráðherra enda mikið starf verið unnið í tengslum við sjálfbærni hjá bæjarfélaginu.
„Stefna Kópavogsbæjar felur í sér hlutverk, gildi og framtíðarsýn auk þess að innihalda yfirmarkmið úr Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Sjálfbærni er þannig leiðarstef í því í hvaða átt starfsemi sveitarfélagsins á að þróast á næstu árum. Við höfum sett íbúa í öndvegi og teljum innleiðingu heimsmarkmiðanna hjálpa okkur við það langtímaverkefni að tryggja lífsgæði íbúa, “ segir Ásdís.

Forsíðumynd: Ásdís Kristjánsdóttir og Katrín Jakobsdóttir fyrir fundinn sl. þriðjudag

Frá fundinum sem fram fór sl. þriðjudag í Salnum Kópavogi.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins