Barnamenningarhátíð í Kópavogi

Barnamenningarhátíð í Kópvogi er haldin vikuna 18. – 22. apríl í Kópavogi með fjölbreyttum sýningum, smiðjum og uppákomum og mun dagskráin ná hápunkti með hátíðardagskrá sem fram fer laugardaginn 22. apríl í menningarhúsunum og í Smáralind.

Textaverk, bróderí og ljóðasýningar eftir hundruð unga Kópavogsbúa

Sýning á fjölbreyttum útsaumsverkum eftir krakka í Snælandsskóla verður á Bókasafni Kópavogs

Á neðri hæð Gerðarsafns stendur yfir sýning á textaverkum eftir unglinga úr Kársnesskóla, unnin undir leiðsögn myndlistarkvennanna Melanie Ubaldo og Dýrfinnu Benitu Basalan en verk krakkanna eru innblásin af sýningunni Að rekja brot sem þar stendur nú yfir.

Á Bókasafni Kópavogs má sjá litríkar sýningar á skapandi starfi leikskóla í Kópavogi, skemmtilegum útsaumsverkum eftir unglinga úr Snælandsskóla og alls konar ljóð sem samin voru af börnum víðs vegar um Kópavog fyrir Ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs.

Splunkunýtt barnamenningarverkefni ÞYKJÓ um sjónskynjun

Á Lindasafni má svo sjá á annað hundrað vatnslitaverk sem hverfast um augu. Augu og sjónskynjun eru líka í forgrunni Náttúrufræðistofu en þar verður glænýtt barnamenningarverkefni eftir hönnunarteymið ÞYKJÓ kynnt til sögunnar. Verkefnið er í formi fallegs heftis með fróðleik og skapandi leikjum sem tengist sjónskynjun. Börn úr grunnskólum Kópavogs heimsækja Náttúrufræðistofu í Barnamenningarviku, fá leiðsögn um sýninguna út frá sjónskynjun og skilja eftir sig listaverk í formi augna sem hægt verður að njóta í uppskeruveislu.

Náttúran sem sögupersóna í Smáralind


Í Smáralind verður sýning á verkum sem innblásin eru af norrænum barnabókahöfundum og Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og verður boðið upp á skemmtilegar klippimyndasmiðjur í anda H. C. Andersen í tilefni sýningarinnar sem er unnin undir merkjum Vatnsdropans sem er stórt alþjóðlegt samstarverkefni Kópavogsbæjar.

Sirkus Ananas sýnir splunkunýja sýningu í Salnum

Trúðavinkonur og ný sýning frá Sirkus Ananas

Laugardaginn 22.apríl verður glæsileg og fjörug dagskrá í menningarhúsunum. Tónlistin mun duna í flutningi Skólahljómsveitar Kópavogs, barna- og skólakóra úr Smáraskóla og Kársnesskóla og marimbasveitar Smáraskóla og dansdúettinn Friðrik Agni og Anna Claessen leiða diskódans fyrir alla fjölskyklduna. Trúðavinkonurnar Silly Suzie og Momo verða á vappi um svæðið og bjóða klukkan 13 upp á fallega sýningu í Gerðarsafni sem snýst um samskipti og tungumál.

Vinátta og tengsl eru líka yrkisefnið í nýrri sýningu Sirkus Ananas sem heitir Springum út og verður sýnd í Salnum á laugardegi klukkan 14. Þar verður boðið upp á hrífandi loftfimleika, trúðalæti og töfra en Sirkus Ananas skipa þau Daníel, Urður Ýrr og Kristinn Karlsson.

Hægt verður að búa til friðardúfa í smiðju á Barnamenningarhátíð

Friðartjald, friðardúfur, klippismiðja og krakkaleiðsögn

Á laugardegi verður auk þess boðið upp á fallegar sköpunarsmiðjur í menningarhúsunum. Þar verður hægt að búa til friðardúfu og skapa friðartjald, gera klippimyndir í anda verka á sýningunni Að rekja brot og Örn Alexander Ámundason myndlistarmaður verður með krakkaleiðsögn um sýninguna klukkan 15.

Það verður svo sannarlega eitthvað fyrir alla á Barnamenningarhátíð í Kópavogi 2023 og er ítarleg dagskrá hátíðarinnar aðgengileg á www.meko.is.

Forsíðumynd: Marimbasveit Smáraskóla kemur fram á Barnamenningarhátíð.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar