Flætt hefur inn í nokkur hús á Kársnesi, kaldavatnslögn rofnaði

Kaldavatnslaust er víða á Kársnesi og truflana á vatnsflæði gætir víðar í Kópavogi eftir að kaldavatnslögn við Kársnesbraut rofnaði. Viðgerð í gangi en ekki liggur ekki fyrir hversu langan tíma  hún mun taka. Því er ekki vitað hvenær vatn kemst aftur á. 

Lögnin fór í sundur á 30 metra kafla en hvers vegna það gerðist er ekki vitað. Flætt hefur inn í nokkur hús við götuna vegna bilunarinnar. 

Haft hefur verið samband við þjónustuver bæjarins vegna vatnsleysis víðar en á Kársnesi, skýring þessa er að þrýstingsfall er í kerfinu vegna bilunarinnar.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar