Lærðu að búa til einfalt jóla origami á Lindasafni

Jóla-origami smiðja verður haldin í fjölskyldustund á laugardegi á Lindasafni þann 10. desember kl. 13:00 – 15:00. Leiðbeinandi er Guðrún Helga Halldórsdóttir, formaður íslensk-japanska félagsins á Íslandi. Hún kynntist japönsku pappírsbroti fyrst fyrir 10 árum þegar hún fór til Kurobe í Japan sem hluti af ungmennaskiptum Lions og hefur verið forfallinn aðdáandi origami allar götur síðan. Hægt verður að gera einfalt origami-jólatré og smærra origami sem hentar mjög vel sem pakkaskraut. Boðið verður upp á pappír í smiðjunni og hentar smiðjan byrjendum jafnt sem reynsluboltum. Hægt verður að glugga í bækur til að fá frekari hugmyndir um hvað sé hægt að gera. Þátttaka er ókeypis og eru öll velkomin. 

Fjölskyldustundir á laugardögum eru styrktar af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar. Viðburðir eru haldnir á víxl á Bókasafni Kópavogs, Gerðarsafni, Náttúrufræðistofu og Salnum.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar