Fantasíur og hrollvekjur í Kópavogi – Sagnaganga frá Víghól

Bókasafn Kópavogs og furðusagnahátíðin IceCon fá rithöfundinn og Kópavogsbúann Emil Hjörvar Petersen í lið með sér og efna til sagnagöngu laugardaginn 11. nóvember kl. 13:00-14:00.

Emil leiðir göngu um sögusvið nokkurra bóka sinna (Víghólar, Dauðaleit, Hælið), segir m.a. frá tilurð þeirra og hvernig umhverfið spannst inn í sögurnar.

Gangan hefst við útsýnisskífuna á Víghól en þaðan verður gengið niður í Hamraborg, í gegnum undirgöngin og niður að gamla Kópavogshælinu.

Emil Hjörvar er heiðursgestur á IceCon ‒ furðusagnahátíð á Íslandi sem haldin verður í maí næstkomandi. 

Öll velkomin og þátttaka er ókeypis. Gangan fer af stað laugardaginn 11. nóvember kl. 13:00 frá Víghól í Kópavogi. 

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins