Ókeypis listsmiðjur fyrir krakka

Krakkar í Garðabæ og þeirra gestir geta glaðst því í hverri viku verður boðið upp á ókeypis smiðjur sem þær Guðný Sara Birgisdóttir og Birna Berg leiða en þær eru báðar sumarstarfsmenn menningarmála í Garðabæ. Smiðjurnar fara fram á þriðjudögum og miðvikudögum klukkan 14-16 og fara flestar fram í Hönnunarsafni Íslands. Þegar vel viðrar munu þær stöllur flytja sig út en tilkynnt verður um nánari staðsetningu á  facebooksíðu Garðabæjar í sérstökum viðburði fyrir hverja smiðju.Birna Berg og Guðný Sara verða að störfum út júlímánuð og munu kenna krökkum að nota efni sem allir geta fundið heima hjá sér eða í nánasta umhverfi hvort sem er rusl eða náttúruleg efni. 

Rétt er að benda á að Bókasafn Garðabæjar býður upp á þriðjudagsleika alla þriðjudaga frá kl. 13-14 á Garðatorgi og tiktok-aðstoð á sama tíma á miðvikudögum og því geta Garðabæjarkrakkar mætt fyrst á Bókasafnið og farið svo yfir í smiðju til Guðnýjar Söru og Birnu Berg.Börn undir 9 ára aldrei þurfa að hafa fullorðinn með sér í listsmiðjurnar.

Birna Berg Bjarnadóttir er 18 ára Garðbæingur með bakgrunn í dansi, leiklist og söng. Hún hefur komið fram á ýmsum uppákomum t.d. á Jazzhátíð í Ystad, Svíþjóð, tónlistarviðburðum og árshátíðum. Birna er verðlaunahafi í söng- og lagasmíðakeppninni Upptaktinum og verðlaunahafi í Nýsköpunarkeppninni Verksmiðjan 2019.

Guðný Sara Birgisdóttir er 28 ára listakona með gráðu í myndlist og meistarapróf í hönnun frá Listaháskóla Íslands. Guðný er reynslumikil í hvers kyns smiðjustarfi og beitir nýstárlegum aðferðum og spennandi nálgunum í listsköpun.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins