Jökull þakklátur og spenntur fyrir því að skrifa undir nýjan samning við Stjörnuna

Það eru heldur betur gleðitíðindi úr Garðabænum, en Stjarnan og Jökull hafa komist að samkomulagi um að framlengja samningi hans til ársins 2027, en þetta kemur fram í frétt frá knattspyrnudeild Stjörnunnar.

Jökull hóf störf hjá Stjörnunni sem aðstoðarþjálfari árið 2021 en tók við keflinu í maí á þessu ári. Liðið náði frábærum árangri í sumar sem skilaði sér í Evrópusæti á næsta ári, geggjaðri stemmningu í stúkunni og í kringum liðið.

,,Ég er þakklátur og spenntur að skrifa undir nýjan samning við Stjörnuna! Við erum að koma úr flottu tímabili en nú þurfum við að gera betur og gera meira og ég hlakka mikið til að byrja undirbúningstímabil þar sem við munum leggja enn meira á okkur en við höfum áður gert,” segir Jökull, þjálfari meistaraflokks karla.

,,Það er ánægjulegt fyrir okkur sem félag að framlengja enn lengri samning við Jökul eða út keppnistímabilið 2027. Samstarf okkar hefur gengið vel frá fyrsta degi og við erum bara rétt að byrja í því sem við ætlum okkur og þurfum að halda vel á spilunum í þeirri vinnu sem er framundan. Það er ljóst að árangurinn síðastliðið tímabil hefur vakið athygli en nú er það að baki og við ætlum okkur að leggja enn harðar að okkur við að ná lengra og til þess þurfa allir að leggja enn meira á sig og það verður gaman að fylgjast með þeirri vinnu undir stjórn Jökuls,” Segir Helgi Hrannarr Jónsson formaður mfl ráðs karla.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar