Ísold og Friðbjörn íþróttafólk Garðabæjar árið 2023

Ísold Sævarsdóttir, köruknattleiks- og frjálsíþróttakona og Friðbjörn Bragi Hlynsson kraftlyftingamaður eru íþróttafólk Garðabæjar árið 2023, en tilkynnt var um val á íþróttakonu og íþróttakarli Garðabæjar á íþróttahátíð Garðabæjar sem fram fór fyrr í dag í Miðgarði. 

Á hátíðina mættu þeir tíu íþróttamenn sem tilnefndir voru til íþróttafólks Garðabæjar fyrir árið 2023, en auk þess voru á hátíðinni veittar viðurkenningar til þeirra sem kepptu með A-landsliði eða U-landsliði í fyrsta skipti á árinu 2023. Einnig fyrir árangur á erlendum vettvangi svo sem á EM, HM eða öðrum sterkum alþjóðlegum mótum á árinu og þá var lið ársins einnig útnefnt, en það var körfunknattleikslið Álftaness. Þá voru útnefndir þjálfarar ársins og heiðursviðurkenningar fyrir störf að félagsmálum afhentar.

 Friðbjörn Bragi Hlynsson

Friðbjörn Bragi Hlynsson æfir klassískar kraftlyftingar hjá lyftingadeild Stjörnunnar. Friðbjörn keppir í -83kg flokki karla og hefur síðastliðin ár verið með stigahæstu keppendum í greininni. Friðbjörn kláraði keppnisárið 2023 með Íslandsmet í hnébeygju, réttstöðulyftu og samanlögðu og er bikarmeistari í klassískum kraftlyftingum hjá Kraftlyftingasambandi Íslands. Friðbjörn tók þátt fyrir Íslands hönd á tveimur mótum á árinu, Vestur-Evrópumótinu og Evrópumeistaramótinu. Hann gerði gott mót á báðum stöðum, vann sinn flokk á Vestur-Evrópumótinu og tók 11. sætið í mjög sterkum flokki á Evrópumeistaramótinu. Friðbjörn er fjölskyldumaður, menntaður íþróttafræðingur og kennir íþróttir á grunnskólastigi. Hann er deildinni og íþróttinni til mikils sóma og er það samróma álit allra sem kynnast honum að þarna er drengur góður á ferð.

Ísold Sævarsdóttir

Ísold Sævarsdóttir var fyrirliði meistaraflokks kvenna hjá Stjörnunni sem vann 1. deildina í körfubolta í vor ásamt því að vinna fjölmarga titla í yngri flokkunum. Ísold var valin varnarmaður ársins í 1. deild kvenna. Einnig lék hún stórt hlutverk í góðum árangri U16 ára landsliði stúlkna sem náði besta árangri kvennaliðs í langan tíma á EM í Svartfjallalandi í sumar. Ísold hefur byrjað tímabilið frábærlega í Subway deildinni og toppaði svo árið með því að spila sína fyrstu A-landsleiki í körfubolta þar sem hún var í stóru hlutverki í leikjum á móti Tyrklandi og Rúmeníu.

Ísold er einnig mjög fjölhæf frjálsíþróttakona þar sem hún keppir með FH. Hún náði þeim frábæra árangri að vinna gull á NM U18 í sjöþraut síðastliðið sumar þó hún sé aðeins 16 ára. Ísold er meðal bestu kvenna á afrekskrá FRÍ fullorðinna í mörgum greinum. Hér er talinn upp árangur hennar í frjálsum og staða á afrekslista FRÍ 2023; 400 m (1. sæti) 56,51 sek innanhúss og 57,46 sek utanhúss, í 400 m grindahlaupi (2. sæti) á 61,07 sek, fimmtarþraut innanhúss (1. sæti) með 3786 stig og í sjöþraut utanhúss (1. sæti) með 5277 stig. Ísold er mikil fyrirmynd.

Á myndinni eru íþróttafólk ársins ásamt Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra í Garðabæ og Hrannari Braga Eyjólfssyni, formanni íþróttaráðs Garðabæjar og bæjarfulltrúi.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar