Hestamannafélagið Sóti vígir nýja reiðhöll í dag

Í dag verður ný reiðhöll hestamannafélagsins Sóta vígð, en Garðabær samþykkti í lok árs 2019, að undangenginni grenndarkynningu, umsókn Sóta um byggingarleyfi fyrir 800 m2 reiðskemmu. Sóti sá alfarið um framkvæmdir við byggingu hússins, gerð bílastæða og frágang lóðar. Áætlaður heildarkostnaður var árið 2019 um 45 milljónum króna. Þar af var framlag Garðabæjar 40 milljónir króna og framlag Hestamannafélagsins Sóta 5 milljónir króna.

Við undirritun samnings skuldbatt Hestamannafélagið Sóti sig til að heimila Garðabæ endurgjaldslaus afnot af húsnæðinu s.s. vegna íþrótta- og æskulýðsstarf, sýninga o.fl. enda raski það ekki skipulögðu og reglubundnu starfsemi hestamannafélagsins.

Mynd. Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar tók skóflustungu að nýrri reiðhöll á félagssvæði hestamannafélagsins Sóta á Álftanesi þann 5. nóvember 2019.

Ný reiðhöll Sóta, sem verður vígð í dag, er merkt með rauðum krossi

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar