Hávaxnar undraverur og glaðværir trommuleikarar á Garðatorgi

Hávaxnar undraverur og glaðværir trommuleikarar skálma um Garðatorg laugardaginn 4. júní kl. 16 og slá tóninn fyrir Listahátíð í Reykjavík 2022. Risavaxnir fánar og blævængir svífa yfir mannfjöldanum og loftið er þrungið spennu, fegurð og hrynjandi.

Hollenski leikhópurinn Close-Act Theatre hefur starfað í hartnær þrjátíu ár og vakið athygli víða um lönd fyrir leiftrandi götuleikhússýningar sem hrífa áhorfendur með sér inn í veruleika þar sem allt getur gerst. Risaeðlurnar í sýningunni Saurus spígsporuðu um miðborg Reykjavíkur í tilefni af opnun Listahátíðar árið 2018 og glöddu áhorfendur á öllum aldri. Hér snýr hópurinn aftur með seiðandi viðburð á heimsmælikvarða sem engin mega missa af.

Rauðglóandi Götuleikhús

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar