Almar tekur við sem bæjarstjóri af Gunnari

Á fundi nýrrar bæjarstjórnar Garðabæjar í gær, 2. júní var samþykkt að ganga til samninga við Almar Guðmundsson um starf bæjarstjóra í Garðabæ kjörtímabilið 2022-2026. Bæjarstjóri er framkvæmdastjóri bæjarins, ráðinn af bæjarstjórn. Hann hefur á hendi framkvæmd ákvarðana bæjarráðs og bæjarstjórnar og fer ásamt bæjarráði með framkvæmda- og fjármálastjórn bæjarins. Bæjarstjóri er yfirmaður starfsmanna bæjarins og æðsti embættismaður.

Almar hefur setið í bæjarstjórn Garðabæjar frá árinu 2014, í bæjarráði frá 2018 og var formaður fjölskylduráðs og öldungaráðs á síðasta kjörtímabili. Hann er hagfræðingur frá Háskóla Íslands og með MBA gráðu frá London Business School.

Undanfarið ár hefur Almar starfað hjá Reiknistofu lífeyrissjóða þar sem hann leiðir vinnu við breytingar á rekstri hugbúnaðarkerfis í eigu lífeyrissjóða. Hann starfaði hjá Krít fjármögnunarlausnum og síðar hjá Kviku 2017-2020 en á árunum 2009-2017 var hann framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda og hjá Samtökum iðnaðarins. Þar áður vann hann ýmis stjórnunarstörf hjá Íslandsbanka og síðar Glitni. Almar er uppalinn Garðbæingur. Hann er kvæntur Guðrúnu Zoega og eiga þau fimm börn saman.

Almar tekur við sem bæjarstjóri af Gunnari Einarssyni sem starfaði sem bæj­ar­stjóri í Garðabæ í 17 ár en hann kom til starfa hjá Garðabæ 25 ára gam­all. Fyrst starf­aði hann sem íþrótta- og tóm­stunda­full­trúi og síðar sem for­stöðu­maður fræðslu- og menn­ing­ar­sviðs áður en hann var ráð­inn bæj­ar­stjóri árið 2005. 

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar