Fjölmörg börn skráðu sig til leiks

Sumarlestur Bókasafns Garðabæjar var formlega settur af stað á laugardaginn fyrir rúmri viku og skráðu fjölmörg börn sig til leiks.

Blaðrarinn mætti á svæðið og bjó til ótal skrítnar verur og hluti úr blöðrum fyrir alla duglegu lestrarhestana. Skráning í sumarlesturinn stendur yfir í allt sumar og eru foreldrar hvattir til að taka þátt í þessum skemmtilega leik með börnunum og koma á bókasafnið til þess að velja sér lesefni.

Í sumarlestrinum setja börnin sér lestrarmarkmið, skrá lesturinn í lestrardagbók og fá límmiða fyrir hverja lesna bók. Þau geta síðan fyllt út umsagnarmiða, skilað honum í lukkukassann og úr honum er dreginn lestrarhestur vikunnar hvern föstudag kl. 12 frá 9. júní til 11. ágúst og fær hann bók í verðlaun. Þema sumarlestursins í ár er himingeimurinn og eru börnin hvött til að koma á bókasafnið til þess að næla sér í lesefni og geysast um í bókageimnum í allt sumar! Lokahátíðin er svo haldin 19. ágúst og fá þá allir virkir þátttakendur glaðning.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins