Allir íbúar Garðabæjar fá loks að fagna þjóðhátíðardeginum saman 

Loksins aftur fá allir íbúar Garðabæjar að fagna þjóðhátíðardeginum saman  en hátíðarhöldin verða með hefðbundnum hætti og fara fram í miðbæ Garðabæjar.

Katrín Halldóra ásamt tríói flytja dagskrá sem samanstendur af lögum sem Ellý Vilhjálms, Jón Múli og erlendir meistarar gerðu ódauðleg

Skrúðganga að lokinni hátíðarmessu frá Vídalínskirkju markar upphaf hátíðarhaldanna en messan hefst kl. 11 og skrúðgangan með Skátafélagið Vífil og Blásarasveit Tónlistarskóla Garðabæjar í fararbroddi leggja af stað frá kirkjunni um klukkan 11:50. Skrúðgangan leiðir hátíðargesti á Garðatorg þar sem Blásarasveitin mun leika nokkur lög og Húlladúllan skemmta og kenna gestum að húlla betur. Hátíðarhöldin á útisviði hefjast klukkan 13 með hátíðarávörpum og ljóðalestri fjallkvenna sem klæðast munu gullfallegum búningum Kvenfélags Garðabæjar og Kvenfélags Álftaness. Þá syngur Barnakór Vídalínskirkju en kynnir þennan dag verður Gunnar Helgason. Ronja Ræningjadóttir mun syngja nokkur lög og liðugur trúður frá Sirkus Íslands leika listir sínar. Ævintýraleg sögustund verður svo á Bókasafni Garðabæjar klukkan 15 en Starína sem farið hefur sigurför um bókasöfn landsins mun lesa í notalegu umhverfi safnsins. Þá munu nemendur úr Tónlistarskóla Garðabæjar flytja  skemmtilega dagskrá þar sem einsöngur og dúettar hljóma og koma öllum í hátíðarskap. Þá verður boðið upp á þrautir og fjör í umsjón skátafélagsins Vífils, fánasmiðju, ókeypis aðgang og leiðsögn á sýninguna Sund í Hönnunarsafni Íslands og kaffihlaðborð Kvenfélags Garðabæjar  í Sveinatungu.

Að kvöldi þjóðhátíðardagsins mun svo Katrín Halldóra ásamt tríói flytja dagskrá sem samanstendur af lögum sem Ellý Vilhjálms, Jón Múli og erlendir meistarar gerðu ódauðleg. Tónleikar Katrínu Halldóru hefjast klukkan 20 í sal Tónlistarskóla Garðabæjar að Kirkjulundi. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Allir ættu því að finna eitthvað við sitt hæfi og fjölskyldur og vinir að sameinast í hátíðleika, fjöri og tónlist í miðbæ Garðabæjar.

Starína, sem farið hefur sigurför um bókasöfn landsins mun lesa í notalegu umhverfi Bókasafns Garðabæjar
Ronja Ræningjadóttir mun syngja nokkur lög

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar