Æfingar hafnar á ný í Miðgarði

Á grundvelli niðurstaðna úr loftgæðamælingum og vegna þess að góð loftræsting með hröðum loftskiptum er í húsinu hófust æfingar á ný í Miðgarði sl. mánudag.

Síðustu vikur hafa æfingar og kennsla á gervigrasinu í íþróttahúsinu Miðgarði legið niðri meðan beðið var niðurstaðna úr loftgæðamælingum og sýnatökum eftir að það lá fyrir að sveppagró hafði greinst í gúmmíundirlagi undir gervigrasi í byrjun október.

Niðurstöður loftgæðamælinga innandyra sýna að loftgæði eru vel innan skilgreindra viðmiðunarmarka og til samanburðar var einnig tekið sýni úr útilofti. Í vikunni fór fram frekari sótt- hreinsun innandyra á gervigrasinu og áfram verður regluleg sótthreinsun í húsinu.

Um leið byrjaði frístundabíllinn í Garðabæ aftur keyra í Miðgarð samkvæmt leiðarkerfi bílsins.
Einnig er vakin athygli á að aðkoma að Miðgarði er um Vetrarbraut frá Vífilsstaðavegi þar sem gatnamót Vetrarbrautar og Hnoðraholtsbrautar eru lokuð vegna gatnagerðar tímabundið í nóvember. Gangandi vegfarendur geta farið um hjáleið.

Áfram verður fylgst vel með loftgæðum með endurteknum mælingum og sýnatökum auk þess sem sótthreinsun verður regluleg og eftir sem áður verður gætt að öryggi þeirra sem æfa í húsinu.

Gert er ráð fyrir að á einhverjum tímapunkti þurfi að fletta gervigrasi upp og skipta um gúmmíundirlag og verið er að vinna aðgerðarplan um umfang þess verks.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar