Umhverfisvænn valkostur í umhverfisvænu samfélagi – Nýir rafmagnsvagnar í Garðabæ

Nýir rafvagnar Strætó eru komnir í akstur og munu meðal annars fara um Garðabæ í Miðgarð, Urriðaholt og á Álftanes.  Engin olíumiðstöð er í vögnunum og verða þeir kynntir með rafmagni. Þeir eru því mjög umhverfisvænir og eru góð viðbót við flota Strætó og í samræmi við stefnu Strætó um kolefnislausan flota árið 2030.

Hrannar Bragi Eyjólfsson, bæjarfulltrúi og stjórnarmaður Strætó frá Garðabæ, segir þetta vera afskaplega ánægjulegan áfanga. „Með nýjum rafvögnum fáum við bætt og aukið aðgengi meðal annars fyrir fólk sem þarf að nota hjólastól en einnig barnavagna og hjól svo dæmi séu tekin. Við erum mjög ánægð að geta boðið upp á umhverfisvænan valkost í umhverfisvænu samfélagi.“

Vagnarnir munu aka leiðir 8, 22, 23 og 31 og fyrir leið 22 í Garðabæ þýðir þetta betra aðgengi þar sem rafvagnarnir eru  stærri og notendavænni en þeir sem óku leiðina áður. Settar hafa verið upp hleðslustöðvar bæði í Ásgarði og á Hesthálsi í reykjavík. Vagnarnir eru hlaðnir í lok eða á milli aksturs.

Forsíðumynd: Almar og Hrannar Bragi við nýja rafvagninn í Garðabæ

Hrannar Bragi og Almar Guðmundsson, bæjarstjóri fengu far með nýja vagninum um Urriðaholt ásamt Jóhannesi Rúnarssyni, framkvæmdastjóra Strætó. 

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins