Ballett í 60 ár

Ballettskóli Eddu Scheving var stofnaður árið 1961 og fagnar því 60 ára afmæli í ár. Starfsemi skólans fer fram í glæsilegu húsnæði skólans í Skipholti 50c en skólinn er einnig með útibú fyrir forskólaaldur í Grafarvogi og í Kópavogi, nú í íþróttasal Kópavogsskóla við Digranesveg. Tímarnir þar hafa verið afar vel sóttir og nánast fullt í alla hópa.

Ballettskóli Eddu Scheving sérhæfir sig í kennslu í klassískum ballett fyrir alla aldurshópa frá 2ja ára aldri en býður einnig upp á jazzballett og söngleikjadans fyrir forskóla og jazz/modern fyrir eldri nemendur. Ballett-fitness eru tímar fyrir fullorðna og svo eru Silfursvanir sem er frábært prógramm fyrir 65 ára og eldri. Einnig býður skólinn upp á matpilates tíma.

Ballettskólinn var stofnaður árið 1961. Hafið þið náð að fagna stórafmælinu? „Á afmælisárinu náðum við ekki að fagna alveg eins vel og við vildum vegna faraldursins. Nemendasýning næsta vor á því að verða enn stærri og glæsilegri í tilefni stórafmælis skólans,“ segir Brynja Scheving, skólastjóri Ballettskóla Eddu Scheving. „Við náðum að halda skólanum mikið opnum en þurftum að loka um tíma, síðan lengdum við annirnar til að allir fengju sín námskeið fullbætt. Þetta eru búnir að vera skrítnir tímar en börnin hafa staðið sig ákaflega vel og við reyndum að gera okkar allra best í stöðunni hverju sinni og höldum því að sjálfsögðu áfram. Síðast liðið vor gátum við haldið nemendasýningar í Borgarleikhúsinu en þó með mjög miklum takmörkunum. Yngsu nemendur héldu sýningar sínar í gegnum netið, streymdum beint og fengum mikið hrós fyrir það og foreldrar almennt mjög þakklátir fyrir hvað við gátum gert í stöðunni eins og hún var.“

Af hverju ballett fyrir ung börn? „Í fyrsta lagi er prógrammið fyrir ygnstu hópana byggt upp með það í huga að það sé gaman að dansa. Við gerum margt mjög skemmtilegt sem höfðar til okkar ungu nemenda, förum í litla leiki og dönsum ýmsa látbragsdansa. Börnin þroska hreyfifærni sína og fínhreyfingar, öðlast aukið sjálfstraust, liðka sig og styrkja. Þau læra að standa í röð og fylgja settum reglum. Ballettinn er bara svo góður grunnur fyrir svo margt í lífinu og hvort sem börnin halda áfram að æfa ballett síðar þá mun grunnurinn sem þau fá út úr náminu á eftir að nýtast þeim á einn eða annan hátt,” segir hún og bætir við: ,,Við erum með margt í boði eins og tímum fyrir 2ja ára. Einstaklega gaman að kenna þá tíma en afar krefjandi líka. Svo er svo gaman að sjá árangurinn og hvað þessi litli kríli ná að gera og herma eftir okkur. Þau öðlast styrk og öryggi og smátt og mátt geta þau séð af foreldrum sínum og notið sín ein að dansa.”

Jazzballett/söngleikjadans og modern tíma fyrir allan aldur

,,Nú bjóðum við einnig boðið upp á sér jazzballett/söngleikjadans og modern tíma fyrir allan aldur. Ballett fyrir fullorðna er frábært prógramm sem við höfum boðið upp á lengi og svo eru Silfursvanirnir frábær viðbót en það eru frábærir tímar fyrir aldurinn 65 ára og eldri. Þar bjóðum við upp á mjúka og létta tíma sem einkennast þó mest af tignarlegum hreyfingum, glæsileika og fallegri tónlist,” segir Brynja sem nefnir einnig að Pilates tímarnir sé frábært kerfi til að styrkja miðju líkamans, en tímarnir byggjast á styrktaræfingum, jafnvægisæfingum og djúpvöðvaþjálfun.”

Þannig að það eitthvað fyrir alla? ,,Jú, og til gamans má geta þess að í tilefni afmælisins erum við með ljósmyndasamkeppni þar sem senda má inn og merkja skólann á facebook eða instagram með millumerkinu #ballettí60ár,” sagði Brynja að lokum.

Haustönn hefst 8. september, skoða má allar upplýsingar á síðu skólans www.bsch.is

Myndirnar sem fylgja eru teknir í kennslustund hjá forskóla.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar