Willum Þór leiðir lista Framsóknar í Suðvesturkjördæmi

Framboðslisti Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar var samþykktur á aukakjördæmisþingi sem haldið var rafrænt í dag 5. júní.  Prófkjör hafði áður farið fram um efstu 5 sæti listans og gerði kjörstjórn tillögu um önnur sæti listans í samræmi við reglur flokksins.  

Oddviti listans er Willum Þór Þórsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins.  Í öðru sæti á eftir honum er Ágúst Bjarni Garðarsson, bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs í Hafnarfirði, í þriðja sæti er Anna Karen Svövudóttir, samskiptafulltrúi og ferðamálafræðingur, í fjórða sæti er Kristín Hermannsdóttir, háskólanemi og í fimmta sæti er Ívar Atli Sigurjónsson, flugmaður og laganemi. 

“Listinn er skipaður öflugum og fjölbreyttum hópi fólks sem er tilbúið að leggja allt sitt fram í þágu Suðvesturkjördæmis og landsins alls á grunni hugsjóna Framsóknarflokksins um samvinnu og jöfnuð.  Stór verkefni eru framundan og það verður ekkert hik á okkur við að búa sem best í haginn og byggja af krafti aftur upp efnahagslífið og samfélagið allt að loknum heimsfaraldrinum.” segir Willum Þór Þórsson. 

Framboðslisti Framsóknar í Suðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 25. september 2021:

1. Willum Þór Þórsson, Kópavogi 
2. Ágúst Bjarni Garðarsson, Hafnarfirði
3. Anna Karen Svövudóttir, Hafnarfirði
4. Kristín Hermannsdóttir, Kópavogi
5. Ívar Atli Sigurjónsson, Kópavogi
6. Svandís Dóra Einarsdóttir, Garðabæ
7. Ómar Stefánsson, Kópavogi
8. Halla Karen Kristjánsdóttir, Mosfellsbæ
9. Baldur Þór Baldvinsson, Kópavogi
10. Margrét Vala Marteinsdóttir, Hafnarfirði
11. Valdimar Víðisson, Hafnarfirði
12. Hjördís Guðný Guðmundsdóttir, Garðabæ
13. Einar Gunnarsson, Hafnarfirði
14. Þorbjörg Sólbjartsdóttir, Mosfellsbæ
15. Árni Rúnar Árnason, Hafnarfirði
16. Dóra Sigurðardóttir, Seltjarnarnesi
17. Páll Marís Pálsson, Kópavogi
18. Björg Baldursdóttir, Kópavogi
19. Sigurjón Örn Þórsson, Kópavogi
20. Tinna Rún Davíðsdóttir Hemstock, Garðabæ
21. Einar Sveinbjörnsson, Garðabæ
22. Helga Björk Jónsdóttir, Garðabæ
23. Einar Bollason, Kópavogi
24. Hildur Helga Gísladóttir, Hafnarfirði
25. Birkir Jón Jónsson, Kópavogi
26. Eygló Harðardóttir, Mosfellsbæ

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar