Laugardaginn 11. júní kl. 14 verða opnaðar tvær nýjar sýningar í Gerðarsafni; ALDA & Við getum talað saman. Báðar sýningar eru hluti af Listahátíð í Reykjavík.
ALDA er áhrifarík innsetning á mörkum dans og myndlistar, flutt af hópi kvendansara, þar sem danshöfundurinn Katrín Gunnarsdóttir sækir í sögu líkamlegrar vinnu kvenna og skoðar sérstaklega endurteknar hreyfingar og söngva, með það að markmiði að skapa aðstæður fyrir nána kvenlæga samveru, samhug og samruna.
Titill verksins, Alda, endurspeglar bæði ölduna sem hreyfiform, en vísar líka í tímann og söguna, hið gamla og nýja.
Gestir geta staldrað við og notið sýningarinnar eins lengi og þeir vilja. Dansararnir verða í rýminu til 26. júní og aftur síðustu sýningarvikurnar. Verkið stendur sem innsetning allt til 4. september.
Listafólk: Katrín Gunnarsdóttir danshöfundur, Eva Signý Berger hönnuður og Baldvin Þór Magnússon hljóðhönnuður
Sýningarstjóri: Brynja Sveinsdóttir
Dansarar: Aðalheiður Halldórsdóttir, Anais Barthe, Halla Þórðardóttir, Heba Eir Kjeld, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, Snædís Lilja Ingadóttir, Sólbjört Sigurðardóttir, Védís Kjartansdóttir
Samstarfsaðilar: Listahátíð í Reykjavík, Multiplie Dance Festival & DansiT, (Throndheim), Finlayson Art Area (Tampere)
Við getum talað saman
Þurfum við að velta því fyrir okkur hvað Norðurlöndin þýða? Hvað Skandinavía þýðir? Þegar við sameinumst undir formerkjum slíkrar hugmyndar sjáum við að við erum bæði líkari og ólíkari en við töldum. Við deilum mörgu en ekki öðru. Við sjáum líka að hugmyndin er búin til – að við búum hana til. Hér sýnir ungt listafólk frá þessum norðurslóðum verk búin til í okkar síbreytilega veruleika.
Platform GÁTT er samstarfsverkefni fimm stórra þverfaglegra listahátíða og stofnana á Norðurlöndum sem hefur verið starfrækt frá árinu 2019. Lokaviðburðurinn fer fram á Listahátíð í sumar. Í þessu þriggja ára verkefni sem fór fram í fimm löndum beindist kastljósið að listafólki undir 35 ára aldri. Listafólkið kynntist þeim stofnunum sem koma að verkefninu með það að markmiði að manngera þessar stóru listastofnanir og opna að þeim dyr. Einnig hefur listafólkið myndað tengsl sín á milli og á milli landa.
Listafólk: Constance Tenvik, Nayab Ikram, Laura Marleena Halonen (Ilmastokirkko), Ronja Louhivuori (Ilmastokirkko), Una Björg Magnúsdóttir, Loji Höskuldsson, Melanie Ubaldo.
Sýningarstjóri: Starkaður Sigurðarson
Samstarfsaðilar: Listahátíð í Reykjavík, Bergen Festspillene, Helsinki Festival, Norðurlandahúsið í Færeyjum, Nuuk Nordisk Kulturfestival & Nordisk Kulturfond
Forsíðumynd: Constance Tenvik, Dressing Up Before Going Out (2021)