Kópavogur sýknaður af öllum kröfum í Vatnsendamálinu

Landsréttur sýknaði í dag Kópavogsbæ af öllum kröfum hluta erfingja Sigurðar K. Hjaltested, fyrrum ábúanda á Vatnsenda, en hinn 25. apríl 2014 var Kópavogsbæ birt stefna af hálfu hluta erfingja Sigurðar K. Hjaltested, fyrrum ábúanda á Vatnsenda. 

Aðalkrafa stefnenda var sú að Kópavogsbær greiddi dánarbúi Sigurðar tæpa 75 milljarða króna vegna eignarnáms á landi Vatnsenda árin 1992, 1998, 2000 og 2007. Málið var þingfest 5. nóvember 2014.

Með dómi Héraðsdóms Reykjaness 22. desember 2020 var Kópavogsbær sýknaður af öllum dómkröfum stefnenda er tóku til eignarnáms árin 1992, 1998 og 2000. Vegna eignarnáms Kópavogsbæjar 2007 var bærinn dæmdur til að greiða dánarbúi Sigurðar K. Hjaltested kr.968.000.000.

Málinu var áfrýjað til Landsréttar sem kvað upp dóm í málinu í dag. Landsréttur sneri við niðurstöðu héraðsdóms að því er varðar eignarnám bæjarins árið 2007 en staðfesti niðurstöðu héraðsdóms að öðru leyti og sýknaði Kópavogsbæ þannig af öllum dómkröfum í málinu.

Mynd: Gamla Vantsendabýlið við Elliðavatn

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar