Vellíðan barna er ekki meðaltal 

Eitt mikilvægasta hlutverkið sem við tökum að okkur er að vera foreldri. Okkur ber að annast barn okkar, sýna því umhyggju og gæta að þörfum þess. Það er eitt að bera ábyrgð sem foreldri en þegar kemur að skólagöngu leggjum við fullt traust á samstarf við skólakerfið. Við treystum því að börnin okkar fái þá umhyggju, stuðning og menntun sem þau hafa þörf fyrir og eiga rétt á. Á sama tíma gerum við þær væntingar að fjölskyldu okkar sé mætt af skilningi.

Ábyrgð sveitarfélaga

Í flestum tilvikum er traust okkar byggt á stöðugum grunni – en ekki alltaf. Það er þó ekki við kennara að sakast því ábyrgðin er sveitarfélaganna. Þau bera ábyrgð á að skapa umhverfi sem mætir þörfum allra barna. Eins sorglegt og það er þá hallar oftast á börn sem passa ekki inn í hinn hefðbundna menntakassa. Börn sem eiga erfitt með nám eiga samt rétt á sérstökum stuðningi í námi samkvæmt grunnskólalögum. En hver fylgir því eftir að þessum lögum sé framfylgt? Hver styður við foreldra sem þurfa að berjast við kerfið? Hver grípur börnin?

Nær öll börn er ekki nóg

Í Lýðheilsu- og forvarnarstefna Garðabæjar 2021 kemur fram túlkun á könnunum á högum og líðan barna og ungmenna í Garðabæ. Þar segir að kannanir sýni að börnum og ungmennum líði „almennt vel“ og að „nær öll“ börn og ungmenni séu jákvæð í námi og leik. En hvað þýðir „almennt vel“ eða „nær öll börn“? Eru það 99% barna eða? 

Það er af fenginn reynslu sem ég brenn fyrir velferð barna og að stutt sé við börn sem passa ekki inn í það norm sem menntakerfið hefur sniðið þeim. Sjálf er ég ADHD einstaklingur sem lenti á flestum veggjum sem hægt er að lenda á í gegnum skólagönguna. Það var því þyngra en tárum taki að upplifa börnin mín lenda á sömu veggjum í gegnum sína skólagöngu hér í Garðabæ. Því miður hafa margir foreldrar svipaðar sögur að segja þrátt fyrir að hér séu öflugir skólar með metnaðarfullum kennurum. Foreldrum sem hafa þurft að berjast við kerfið gagnast ekkert að lesa um „nær öll börn“ eða að börnum líði „almennt vel“. Ef kerfið bregst þá ætti það ekki að krefjast baráttu foreldra. Þeir foreldrar þurfa alla sína orku fyrir barnið og þrá kerfi sem virkar.

Fögnum fjölbreytileikanum – Gerum betur

Fjölbreytileikinn er það sem gerir samfélög betri og við ættum að fagna honum í stað þess að reyna að steypa alla í sama mótið. Við eigum að styðja við einstaklinga eins og hentar þeim hvað best. Sagan sýnir einnig að það eru jú þeir einstaklingar sem passa ekki inn í fyrrgreindan kassa, sem oft á tíðum skara fram úr í sköpun og frjórri hugsun. Það einmitt það sem samfélag okkar allra nærist á.

Við í Viðreisn viljum gera betur. Við viljum styðja við skólana okkar, mannauðinn og byggja upp umhverfi sem mætir þörfum allra barna og kerfi sem við foreldrar getum unnið með í þágu velferðar barnanna. 

Rakel Steinberg Sölvadóttir 
Frumkvöðull og skipar 3ja sæti á lista Viðreisnar í Garðabæ

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar