Hressir og kátir eldri borgarar í Garðabæ

Hressir og kátir eldri borgarar hittast alla daga og ganga saman um bæinn. Hópurinn hittist alltaf við Jónshús og hefst gangan klukkan tíu.

Það geta allir komið með og gengið, fólk velur sinn gönguhraða og misjafnt hversu langt er gengið.

Margir eru að ganga um fimm kílómetra og það eru margir sem ganga styttra allt eftir getu og tíma. Svo er endað á kaffibolla í Jónshúsi yfir notalegri samverustund.

Í vikunni var hress og kátur hópur sem gekk hringinn við Vífilsstaðavatn.  Hittst var við Jónshús kl. 10.00 og sameinast í bíla.  Gengið var hringinn í kring um vatnið og notið bæði blíðviðris og náttúrufegurðarinnar.

Hópurinn ætlar að endurtaka þessar göngur næstu vikurnar og áformar að næsta ferð verði þriðjudaginn 27. júní og þá verði gengið um Hvaleyrarvatn.

Gangan hefur annars verið alla daga í vetur og vor og hefur hópurinn hvorki látið veður né vind aftra sér í göngunni.  Það eru að jafnaði milli 30 og 40 manns sem fara af stað.  Dásamlegt samfélag sem við eigum  og njótum að eiga stundirna saman. Gangan er svo hressandi og nauðsynlegt að fá hreyfingu og útivist á hverjum degi.

Laufey Jóhannsdóttir
formaður FEBG

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar