Framúrskarandi þjónusta – alltaf

Undanfarið hefur íbúum Garðabæjar farið ört fjölgandi. Stækkandi sveitarfélögum fylgja oft vaxtaverkir eins og stækkandi börnum. Það var því ánægjulegt að fá niðurstöður úr árlegri þjónustukönnun Gallup fyrir árið 2022. Þar lendir Garðabær í fyrsta sæti í níu af þrettán almennum viðhorfsspurningum (við deilum vissulega stundum sæti með öðrum). Blöndun byggðar, þjónusta, snjómokstur, sorphirða, umhverfi og auðvitað leikskólapláss og aðbúnaður grunnskóla eru þar mikilvæg púsl til þess að koma á góðum bæjarbrag og könnun eins og þessi hjálpar okkur að stilla fókusinn.

Markmið okkar er ávallt að veita íbúum framúrskarandi þjónustu í fjölbreyttu og ört stækkandi samfélagi. Ég vil auðvitað óska öllu starfsfólki Garðabæjar til hamingju með þessar niðurstöður og þakka þeim fyrir faglegan metnað og þjónustulund,. Undanfarin ár hefur niðurstaðan úr þessari könnun verið á þennan veg eða sambærilegan hið minnsta, sem við getum öll verið mjög stolt af. 

Markmið könnunarinnar er að kanna ánægju með þjónustu 20 stærstu sveitarfélaga landsins og gera samanburð á þeim ásamt því að skoða breytingar frá fyrri mælingum. Í flestum spurningum er Garðabær að mælast töluvert hærra en meðaltal sveitarfélaga. Af niðurstöðum sést vel að þau sem hafa nýtt sér þjónustu bæjarins segjast vera ánægðari heldur en þau sem ekki hafa nýtt hana. Garðabær hækkar milli ára í öllum spurningunum nema einni þar sem einkunnin stóð í stað í málefnum fatlaðs fólks. Þar eru tækifæri til úrbóta. Við höfum unnið markvisst að því að efla þjónustu við fatlað fólk og hefur umfang þjónustunnar vaxið langmest af öllum málaflokkum undanfarin ár. Niðurstöðurnar tala sínu máli og fela í sér tækifæri til að gera betur. Við  höfum þegar sett af stað vinnu með þjónustuþegum við að bæta þjónustuna.

Sjálfur er ég kannski hvað ánægðastur með niðurstöðurnar okkar í leikskóla og grunnskólamálum. Undanfarnir mánuðir hafa einkennst af umræðu um rakaskemmdir í skólahúsnæði og viðbrögðum við þeim. Þetta hefur verið afar krefjandi tími fyrir starfsfólk, nemendur og forráðamenn en við höfum átt í góðu samtali við þessa hópa, framkvæmdir eru í fullum gangi. Við erum sannfærð um að við séum að ná vel utan um stöðuna með bættu verklagi og miklum framkvæmdum. Við vitum nefnilega að á stóru heimili gengur oft á ýmsu, en við viljum að Garðbæingar geti treyst því að þegar eitthvað bregður út af geti þau treyst á snöggt og traust viðbrögð bæjarins og góða þjónustu. 

Við sem njótum þess að búa í Garðabær vitum að hér er allt til alls. Við erum stækkandi sveitarfélag sem mætir þeim áskorunum sem það hefur í för með sér og leitum leiða til þess að bæta þjónustuna. Við viljum og ætlum að vera framúrskarandi. Þess vegna ætlum við að rýna betur í niðurstöður og einstaka þætti könnunarinnar hjá nefndum og sviðum bæjarins og skoða með hvaða hætti Garðabær getur haldið áfram að bæta þjónustu sína.

Við höldum áfram að leggja okkur fram um að veita góða þjónustu, við ætlum að halda áfram að sækja fram. Það hefst aðeins með stöðugu samtali við bæjarbúa. Það er svo sannarlega hvatning til að gera enn betur að íbúar Garðabæjar eru þeir ánægðustu með þjónustu sveitarfélagsins. Ég er afskaplega stoltur af starfsfólkinu okkar og bæjarfélaginu.

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar