Heilsugæslan Garðabæ flytur tímabundið vegna eldsvoða

Heilsugæslan Garðabæ flytur tímabundið í tímabundna aðstöðu á meðan húsnæði stöðvarinnar við Garðatorg verður þrifið og endurnýjað. Eldur kom upp í aðliggjandi húsnæði á Garðatorgi fyrir helgi og varð talsvert tjón á stöðinni af völdum reyks sem barst um bygginguna.

Starfsfólk Heilsugæslunnar Garðabæ hefur fengið tímabundna aðstöðu til að taka á móti skjólstæðingum sem eiga bókaða tíma á nærliggjandi heilsugæslustöðvum í Hafnarfirði og Kópavogi. Haft verður samband við þau sem eiga bókaða tíma og upplýst um hvar verður tekið á móti viðkomandi.

Fólki með bráð erindi er bent á að hringja í síma 1700 eða hafa samband í gegnum netspjall Heilsuveru. Starfsfólk Upplýsingamiðstöðvar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins mun veita ráðgjöf og koma erindum á nærliggjandi stöðvar.

Mun flytja tímabundið í Þönglabakka 1

Unnið er að því að koma upp tímabundinni aðstöðu fyrir alla starfsemi Heilsugæslunnar Garðabæ á einum stað á meðan viðgerðir á Garðatorgi standa yfir. Á næstu dögum mun stöðin opna í húsnæði Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við Þönglabakka 1 í Mjóddinni. 

Óvíst er á þessu stigi hversu lengi stöðin á Garðatorgi verður lokuð en umtalsvert tjón varð á fasteigninni, húsgögnum, tölvubúnaði og lækningatækjum sem þar voru. Ljóst er að vinna við þrif og endurnýjun mun taka einhverjar vikur að lágmarki.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins