Uppskrift vikunnar er í boði sérvöruverslunarinnar Me&MU á Garðatorgi, en í versluninni er hægt að fá margar sérvaldar og spennandi matvörur beint úr héraði, bæði hérlendis og erlendis frá. Þetta eru allt vörur frá smáframleiðendum sem leggja áherslu á gæði í hráefni og að baki þessari framleiðslu liggur jafnan handverk.
Langflestar matvörurnar sem eru í uppskriftunum frá Me&Mu fást í versluninni á Garðatorgi 1.
Eigendur Me&Mu eru þær Anna Júlíusdóttir og Sveinbjörg Jónsdóttir. Að þessu sinni bjóða þær upp á Bleikju eða lax með pecanhnetusalsa, brenndri soyasmjörsósu og sætkartöflumús.
Hráefni
- Sirka 800 g bleikja / lax
- salt og pipar
- 3-4 msk pecanhnetur, saxaðar meðalgróft
- 2-3 msk sítrónusafi og rifið hýði af 1/2 sítrónu
- 1 msk olífuolía
- fersk kóríander eða steinselja, söxuð
Ofninn hitaður í 200 gráður. Bleikjuflökin / laxaflökin eru lögð í eldfast mót. Krydduð með salti og pipar. Því næst er blandað saman í skál: pecanhnetum, sítrónusafa, sítrónuhýði, steinselju eða kóríander og ólífuolíu. Blöndunni er dreift yfir fiskinn. Bakað í miðjum ofni við 200 gráður í ca 12-15 mínútur eða þar til fiskurinn er fulleldaður. Einnig hægt að steikja á pönnu. Gætið þess að ofelda hann ekki.
Sojasmjörsósa
- 150 g smjör
- 2 skarlottulaukur
- 1 hvítlauksrif, saxað fínt
- 1 tsk rautt chili, fræhreinsað og saxað fínt
- 4-5 msk sojasósa / tamarinsósa
- 2 msk steinselja, söxuð smátt
Smjör brætt í potti og látið krauma fremur vægt í ca 15 mínútur þannig að smjörið verði brúnt (þetta kallast brúnað smjör). Froðan veidd af smjörinu. Lauk, hvítlauk, sojasósu, chili og steinselju blandað saman í skál og blandað út í smjörið rétt áður en sósan er borin fram.
Sætkartöflumús
2 sætar kartöflur (frekar stórar)
150 g hreinn rjómaostur
1 tsk. smjör
Sjávarsalt eftir smekk Sjóðið kartöflurnar þar til fullsoðnar –
Skafið innan úr kartöflunum þegar þær eru tilbúnar.
Hrærið rjómaostinum, smjörinu og saltinu saman við.
Þá er músin tilbúin. Verði ykkur að góðu.