Venjulegar konur – Menning á miðvikudögum

Í tilefni af upphafi 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi sem hefst 25. nóvember mun Brynhildur Björnsdóttir, höfundur bókarinnar Venjulegar konur – vændi á Íslandi segja frá bókinni og rannsóknum sínum við gerð hennar þann 23. nóvember. Erindið fer fram á 1. hæð aðalsafns Bókasafns Kópavogs og hefst kl. 12:15. 

Vændi hefur hingað til ekki farið hátt í umræðunni enda hefur því alltaf fylgt skömm og launung. Brotþolar vændis glíma við flóknar og alvarlegar afleiðingar vændisins, skelfilegar minningar og lífsreynslu sem erfitt getur reynst að lifa með. Vændiskaup eru ólögleg hérlendis og teljast kynferðisbrot samkvæmt íslenskum lögum. Samkvæmt lögreglunni og brotaþolum vændis er eftirspurnin eftir vændi þó gríðarleg hér á landi. Það er því mikilvægt að tala opinskátt um vændi, bæði á samfélagslegum grundvelli og ekki síður hvernig má koma til móts við brotaþola vændis af skilningi og mannúð. 

Menning á miðvikudögum er styrkt af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins