Úthlutun leikskólaplássa hefst um miðjan mars fyrir börn sem eru fædd árið 2022 og fyrr

Úthlutun leikskólaplássa fyrir börn sem fædd eru árið 2022 og fyrr hefst um miðjan mars.

Umsóknir sem koma eftir 11.mars fara á bið/frystingu á meðan úthlutun stendur. Gert er ráð fyrir því að seinni hluti úthlutunar fari fram í apríl/maí. Í seinni hluta úthlutunar verður farið yfir nýjar umsóknir og flutningsumsóknir sem berast eftir 11. mars og umsóknir barna fædd í fyrri hluta árs 2023.

Fyrra úthlutunartímabilið stendur yfir í um það bil tvær vikur og fá foreldrar úthlutunarbréf rafrænt á meðan á því stendur.

Ekki liggur fyrir að svo stöddu hversu mörg börn fædd á árinu 2023 fá úthlutun fyrir haustið,en líklegt er að það verði fyrstu tveir mánuðir af árinu 2023.

Nánari upplýsingar um úthlutun vegna barna fædd árið 2023 verða veittar þegar dregur að seinni úthlutun.
Kópavogsbær rekur 19 leikskóla en að auki eru tveir einkareknir og einn þjónusturekinn leikskóli í bænum.
Sótt er um leikskólapláss https://umsokn.vala.is/ eða í þjónustugátt Kópavogsbæjar.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins