Opnað fyrir tilboð í sex fjölbýlishúsalóðir í fyrsta áfanga í Vatnsendahvarfi

Opnað hefur verið fyrir tilboð í lóðir í fyrsta áfanga úthlutunar í Vatnsendahvarfi, sem er nýjasta hverfið í Kópavogi. Í þessum fyrsta áfanga verður úthlutað sex lóðum fyrir fjölbýlishús. Í hverfinu er gert ráð fyrir 500 íbúðum í fjölbýli, par- og raðhús auk einbýli. Stefnt er að því að úthluta öllum lóðum á árinu en í nokkrum áföngum.
 
„Það er gríðarlega spennandi að fá nýtt hverfi í Kópavoginn og við finnum að það er mikill áhugi, enda góð staðsetning á frábærum útsýnisstað í nálægð við mikla náttúrufegurð. Áhersla er lögð á fallega og umhverfisvæna byggð í Vatnsendahvarfi með góðum samgöngutengingum fyrir alla ferðamáta. Þá munu íbúar njóta góðs af þeirri þjónustu sem fyrir er í nærumhverfinu auk þess sem reistur verður leikskóli og grunnskóli fyrir 1. til 4. bekk í þessu nýja hverfi.“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs. 
 
Byggð í Vatnsendahvarfi mun falla vel að nærliggjandi svæðum og gróður og náttúra fléttast inn í opin svæði hverfisins. Áhersla verður lögð á góðar samgöngutengingar fyrir gangandi, hjólandi og akandi vegfarendur.
 
Hverfið stendur á Vatnsendahæð og afmarkast af Álfkonuhvarfi, Turnahvarfi, Kleifakór og Arnarnesvegi.
 
Opið er fyrir tilboð í lóðir í fyrsta áfanga til 21. maí.
 
Nánari upplýsingar www.kopavogur.is/vatnsendahvarf
 
Mynd/Nordic Office of Architecture

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar