Opnu húsin í Vídalínskirkju að byrja aftur

Safnaðarstarfið í Vídalínskirkju er að hefjast aftur eftir sumarhlé og þriðjudaginn 19. september kl. 13:00 byrjar Opið hús á nýjan leik. Bjartmar Guðlaugsson tónlistarmaður kemur þá í heimsókn.

Þann 26. september verður spilað bingó – sem alltaf hefur notið vinsælda. Harmonikkuball með kótelettuveislu verður 3. október og þarf að skrá sig í matinn hjá [email protected].

Margir mæta fyrst á kyrrðar- og helgistund í Vídalínskirkju sem hefst hefst kl. 12:00 og fá súpu og brauð á eftir gegn vægu verði.

Dagskrá opnu húsanna verður birt á vef sóknarinnar mánaðarlega í vetur. Allir eru velkomnir á opnu húsin og ekki þarf að skrá sig nema í kótelettuveisluna.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar