Fermingin er falleg samleið

Fermingin á sér djúpar rætur í íslensku samfélagi. Það má segja að fermingarfræðslan og fermingin sé falleg samleið heimila og kirkju þegar börnin okkar fara frá barnæsku yfir á unglingsárin.  Það er oft svolítið flókinn tími og gott að staldra við og skoða mikilvæga vegvísa sem byggja á 1000 ára trúarmenningu. 

Fermingin er í raun síðbúin skírnarfræðsla vegna þess að ungabörn eru skírð að ósk foreldra svo kirkjan ber ábyrgð á að bjóða þeim fræðslu og samleið þegar þau ná vissum aldri og þroska. Það er svo margt í boðskap Krists sem valdeflir og skapar fallega sjálfsmynd.  Gullna reglan, sagan um miskunnsama Samverjann, sagan um týnda soninn og margar fleiri sögur úr biblíunni eru sögur sem kynslóðir íslendinga hafa lært og tileinkað sér til eftirbreytni. Þessar sögur og margar fleiri notum við í kirkjunni til að undirbúa fermingarbörnin undir það mikilvægasta í lífinu sem eru mannleg samskipti og sjálfsþekking – af því að sjálfsþekking og hæfni í samskiptum við annað fólk er leiðin til farsældar og hamingju, fyrir utan að sjálfsþekking mótar fallega sjálfsmynd.  Og svo kennum við þeim að biðja bænir vegna þess að bænin fær okkur til að beina huganum að því sem mestu máli skiptir í lífinu sem er heilsan okkar, fólkið okkar, landið okkar og heimurinn okkar.  Það er oft sagt að bænin breyti ekki Guði en hún breytir alveg örugglega þeim sem biður.

Um þessar mundir eru á þriðja hundrað ungmenni í Garðabæ að velta fyrir sér hvort þau eigi að fermast vorið 2023.  Við höfum notið þeirrar gleði að langflest þeirra kjósa að fermast  enda er vandfundið það bæjarfélag á Íslandi sem státar af hærra hlutfalli íbúa sem eru í Þjóðkirkjunni.  En það er mikilvægt að taka umræðuna heima og velta því fyrir sér hvaða væntingar eru til þessarar samleiðar hjá unglingunum okkar.  Sum þeirra koma og segjast ekki eiga sterka trú og þá er hægt að horfa á samleiðina sem leit andlegra gæða og það hefur líka gerst að unglingar hafa tekið alla fermingarfræðsluna en ekki fermst, af því að fræðslan var stóra málið. Við höfum líka haft í fermingarfræðslunni ungmenni af öðrum trúarbrögðum sem hafa notið samfélagsins.  Í Vídalínskirkju leggjum við metnað okkar í að fræða börnin um aðalatriði lífsins  og leggjum áherslu á að nálgast einstaklingana á þeirra forsendum. 

Sunnudaginn 1. maí hefjast fermingarstörfin formlega í Garðasókn með því að við bjóðum fermingarbörnum og aðstandendum þeirra til guðsþjónustu kl.11:00 . Stundin er sniðin að því að bjóða ykkur sérstaklega velkomin inn í þessa fallegu samleið sem fermingarveturinn er í lífi fjölskyldunnar. 

Strax að lokinni guðsþjónustunni er stuttur fundur þar sem skráning á fermingardaganna er kynnt og farið yfir helstu tímasetningar á haustönninni, eins og fermingarferðalög í Vatnaskóg og fermingartíma. Það er hægt að sjá hvaða fermingardagar eru í boði inn á gardasokn.is.  Við hlökkum til að eiga þessa stund með ykkur.

Með blessunaróskum
sr. Jóna Hrönn Bolladóttir og  sr. Henning Emil Magnússon

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar