Prófkjöri Pírata í Kópavogi fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor lauk í dag og var tilkynnt um úrslitin í Tortuga, höfuðstöðvum Pírata í Síðumúla í Reykjavík og í beinni útsendingu á piratar.tv.
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir núverandi oddviti Pírata í Kópavogi heldur oddvitasætinu og mun skipa 1. sæti á lista flokksins í Kópavogi. Indriði Ingi Stefánsson er í 2. sæti og Eva Sjöfn Helgadóttir í 3. sæti.
153 tóku þátt í prófkjörinu
Í prófkjöri Pírata í Kópavogi kusu 153 manns, en alls eru 267 einstaklingar skráðir félagar í Pírötum í Kópavogi. Ekki er þó vitað hversu margir af þeim tóku þátt í prófkjörinu þar sem var opið öllum pírötum á landsvísu. Alls eru 5365 skráðir í flokkinn og var kjörsóknin því um 3%.
Efstu sætin á lista Pírata í Kópavogi skipa:
1. Sigurbjörg Erla Egilsdóttir
2. Indriði Ingi Stefánsson
3. Eva Sjöfn Helgadóttir
4. Matthías Hjartarson
5. Margrét Ásta Arnarsdóttir
6. Árni Pétur Árnason
7. Kjartan Sveinn Guðmundsson
Á myndinn eru þrí efstu frambjóðendur Pírata í Kópavogi. F.v. Indriði, Sigurbjörg Erla og Eva Sjöfn.