Vala Hauksdóttir handhafi Ljóðstaf Jóns úr Vör

​​Ljóðstafur Jóns úr Vör var veittur við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi sunnudaginn 21. janúar sl.

Ljóðstafinn hlaut Vala Hauksdóttir fyrir ljóðið Verk að finna. Önnur verðlaun hlaut Elísabet Dröfn Kristjánsdóttir fyrir ljóðið Skyggnishnignun og þriðju verðlaun hlaut Ragnheiður Harpa Leifsdóttir fyrir ljóðið Deig. 

Að auki hlutu sex ljóð sérstaka viðurkenningu dómnefndar. Í móðurkviði eftir Draumeyju Aradóttur, Straumönd eftir Elínu Elísabetu Einarsdóttur, Stríðsyfirlýsing eftir Höllu Þórðardóttur, Fálæti og Legið yfir gögnum eftir Jón Knút Ásmundsson og Segðu mér eitthvað fallegt eftir Ragnar Jónasson.

Þau sem fengu viðurkenningu dómnefndar fyrir ljóð sín í keppninni Ljóðstaf Jóns úr Vör ásamt Elísubetu Sveinsdóttur og Ásdísi Kristjánsdóttur

270 ljóð bárust í keppnina

270 ljóð bárust í keppnina í ár en ljóðin mega ekki hafa birst áður og skulu send inn undir dulnefni höfundar. Dómnefnd skipuðu Kristín Svava Tómasdóttir (formaður), Þórdís Helgadóttir og Þórður Sævar Jónsson.

Úrslit í Ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs
Við sama tilefni voru veitt verðlaun í Ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs og var dómnefnd sú sama.

Þar hlaut fyrstu verðlaun Alexander Aron Jörgensson í 10. bekk í Lindaskóla fyrir ljóðið Appelsínur en Alexander hlaut einnig fyrstu verðlaun í sömu keppni fyrir réttu ári. Önnur verðlaun hlaut Inga Bríet Valberg, 5. bekk í Snælandsskóla fyrir ljóðið Ég og hún og þriðju verðlaun hlaut Sigurlín Viðarsdóttir, 10. bekk í Lindaskóla fyrir ljóðið Mjöll, Fönn og Drífa.

Við sama tilefni voru veitt verðlaun í Ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs. Þar hlaut fyrstu verðlaun Alexander Aron Jörgensson í 10. bekk í Lindaskóla fyrir ljóðið Appelsínur en Alexander hlaut einnig fyrstu verðlaun í sömu keppni fyrir réttu ári.

Sérstakar viðurkenningar hlutu þau Angelo Mikael KoraleArachchige, 9. bekk í Lindaskóla fyrir ljóðiðBatmann,Evelina Sóley Arthur, 7. bekk í Kársnesskóla fyrir ljóðiðFuglaljóð, Elsa Hlín Sigurðardóttir, 9. bekk í Lindaskóla fyrir ljóðið Sumarið, Ríkharður Óli Brynjarsson, 10. bekk í Lindaskóla fyrir ljóðið Að vera ég, Sóldís AnahitaShahsafdari, 6. bekk í Álfhólsskóla fyrir ljóðið Úti og Alexander Aron Jörgensson fyrir ljóðið Í öðrum heimi.

Um Völu Hauksdóttur
Vala Hauksdóttir (f.1992) hefur skrifað smásögur, ljóð, dagbækur og hugleiðingar frá barnsaldri og stundar nú meistaranám í ritlist við Háskóla Íslands. Að loknu námi við Fjölbrautaskóla Suðurlands nam Vala ferðamálafræði við Háskóla Íslands og Háskólann í Limerick í Írlandi. Hún starfar nú sem verkefnastjóri hjá Markaðsstofu Suðurlands og hefur unnið fjölbreytt störf tengd ferðaþjónustu í rúman áratug. Vala er grúskari með ástríðu fyrir íslenskri náttúru, menningu og sögu og var einn höfunda að samskotsverkinu Einangrun sem Lakehouse Theatre Company stóð fyrir á Listahátíð í Reykjavík árið 2021. Vala er nýstigin inn í heim ritlistarinnaraf fullum þunga og stefnir á frekari ritstörf á næstu misserum.

Vala les ljóðs sitt á hátíðinni, Verk að vinna

Sigurljóð Ljóðstafs Jóns úr Vör 2024
 
Verk að finna

Hrífuskaftsflís
í hengibrúnni milli bendifingurs og þumals.

Útsaumsnál
undir baugfingursnögl.

Skeljasandur
í hælsæri.

Hrossafælir
sem skýst með þyt undan þúfu

​fall

að missa andann – 
sortna fyrir augum
í lyngi.
 
Sælan er skortur
á öllu nema tíma
til verkja.

Hamingjan 
er sigg.

Vala Hauksdóttir
 
Umsögn dómnefndar um sigurljóðið

​Upphafslínur ljóðsins slá tóninn: einföld en áhrifaríkmynd af flís sem gengur inn í hold. Myndirnar sem brugðið er upp í ljóðinu af aðskotahlutum sem særa líkamann eru hárnákvæmur, tálgaðar og allt að því óþægilegar. Agað formiðkallast á við efniviðinn og ljóðskáldið teflir saman mýkt og ​hörku af miklu listfengi. Húðin verður tákn fyrir aðlögunarhæfni, þrautseigju og umbreytingarmátt manneskjunnar. Í upphafi ljóðsins er húðin ​ognæfurþunn og það þarf lítið til að raska ró hennar; flís, sandkorn, nálarodd, en í fyllingu tímans breytist húðin í sigg, ekkert bítur á henni lengur,  ​þar má finna hamingju og sátt. Ljóðið er hugleiðing um líkama og meðvitund, sársaukaog erfiði,og þau spor sem lífsreynslan skilur eftir sig. Þetta er texti sem má og þarf jafnvel að lesa ítrekað og leitar lengi á huga lesandans.

Forsíðumynd: Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri, Vala Hauksdóttir handhafi Ljóðstafs Jóns úr Vör og Elísabet Sveinsdóttir, formaður lista- og menningarráðs

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar