Flott og fyndið í Salnum

Vísnapoppbandið FLOTT minnkar poppið og stækkar vísuna og heldur nánast órafmagnaða tónleika í Salnum í Kópavogi á laugardaginn, 27. janúar kl. 20. Vigdís Hafliða, söngkona sveitarinnar og grínisti, mun segja sögur á milli laga.

FLOTT skaust upp á stjörnuhimininn árið 2021 með laginu ‘Mér er drull’ sem var valið popplag ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum. FLOTT var einnig valin sem Bjartasta vonin. Síðan þá hafa þær gefið út hvern smellinn á fætur öðrum en lögin hafa ýmist náð inn á vinsældarlista Rásar 2 og Bylgjunnar.

Hljómsveitin heldur ekki oft tónleika og því tilvalið að grípa tækifærið 27. janúar. Þó að FLOTT sé poppsveit verða tónleikarnir í látlausari kantinum – minna popp og meiri vísa. Vigdís Hafliða, söngkona sveitarinnar og uppistandari, mun segja sögur á milli laga, en hún hefur vakið athygli sem grínisti, meðlimur uppistandshópsins VHS og ein af handritshöfundum áramótaskaupsins 2022.

FLOTT eru Ragnhildur Veigarsdóttir á hljómborði, Sylvía Spilliaert á bassa, Eyrún Engilbertsdóttir á gítar, Sólrún Mjöll Kjartansdóttir á trommum og Vigdís Hafliðadóttir söngkona.

Þegar er búið að setja á aukatónleika 16. febrúar.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins