Rabbað um erfðamál

Fræðsluerindi um erfðarétt og erfðamál með Elísabet Pétursdóttur, lögmanni hjá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar á Bókasafni Kópavogs miðvikudaginn 15. maí kl. 16:30-17:30

Elísabet mun fara yfir ýmis hagnýt atriði er varða erfðarétt. Meðal þess sem farið verður í, er hvenær heimild fæst til setu í óskiptu búi og hvað sá sem situr í óskiptu búi má gera meðan búinu hefur ekki verið skipt. Þá er farið yfir hvaða reglur gilda um fyrirframgreiddan arf, hver munurinn er á einkaskiptum og opinberum skiptum á dánarbúum, hverjir taka arf eftir hinn látna og ýmis atriði tengd erfðaskrám. Tími gefst til almennra fyrirspurna og umræðu um efnið.

Viðburðurinn fer fram á aðalsafni bókasafnsins. 

Aðgangur ókeypis og öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar