Uppátækjasamar vinkonur í Gullsmáranum

Vinkonurnar í Gullsmára 9 í Kópavogi eru hressar með afbrigðum og nokkuð uppátækjasamar. Þær kunnu svo sannarlega að gera sér glaðan dag og nýverið héldu þær mjög flott hattakvöld í salnum sem þær hafa aðgang að á 14. hæð í Gullmáranum.

Þær skemmtu sér konuglega og mættu með litríka og frekar flotta hatta, en þær koma sama einu sinni í mánuði og halda þá skemmtikvöld með mismunandi útfærslum. Það verður spennandi að sjá hvað vinkonurnar taka upp á næst.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar