Undur vísindanna á Bókasafni Kópavogs

Jarðhæð Bókasafns Kópavogs umbreytist í gagnvirka og lifandi undraveröld laugardaginn 7. október á milli 13 og 15. 

Furðuspeglar og speglabrunnar, söngskálar og listrænar pendúlur eru á meðal þess sem má uppgötva og rannsaka í fylgd leiðsögufólks frá hinnu einu sönnu Vísindasmiðju Háskóla Íslands. Forvitin börn á öllum aldri eru hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir og aðgangur er ókeypis.

Markmið Vísindasmiðjunnar er að efla áhuga ungmenna á vísindum með gagnvirkum og lifandi hætti, styðja við kennslu á sviði náttúru- og raunvísinda og miðla vísindalegri þekkingu til samfélagsins.

Í því markmiði tekur Vísindasmiðjan á móti skólahópum, heldur reglulega endurmenntun fyrir kennara, og býður upp á opin hús og farandsýningar í tengslum við sérstaka viðburði. Vísindasmiðjan hefur undanfarin ár komið reglulega á Bókasafn Kópavogs og kynnt undur vísindanna á fjölsóttum fjölskyldustundum.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar