Stærsti viðburður GKG handan við hornið

Meistaramótið GKG, sem er stærsti viðburður ár hvert í móthaldi GKG, verður haldið með pompi og prakt dagana 2. til 8. júlí þar sem keppt er í alls 22 flokkum, allt frá meistaraflokkum til 5. flokks, frá börnum 10 ára og yngri, til 70 ára og eldri. Sannkölluð golfhátíð. Skráning opnar í kvöld kl. 21 og lýkur fimmtudaginn 29. júní. Skráning er á golfbox (https://tourentry.golfbox.dk/?cid=4021085)

Meistaramótinu lýkur með lokahófi og verðlaunaafhendingu í kjölfar lokahrings á laugardegi þar sem félagsmenn eiga góða kvöldstund saman.

Sumir flokkar leika í 3 daga frá sunnudegi til þriðjudags, meðan aðrir leika í 4 daga frá miðvikudegi til laugardags. Dagskrá flokka og aðrar upplýsingar er hægt að skoða á tenglum hér á síðunni.

Þriðjudaginn 4. júli. verður lokahóf fyrir 16 ára og yngri. Boðið verður upp á pizzur og drykki auk þess sem dregið verður úr skorkortum keppenda með lukkuhjólinu sívinsæla.

Fyrir aðra flokka verðum við með glæsilegt lokahóf og verðlaunaafhendingu laugardagskvöldið 8. júlí. Hægt að kaupa miða á lokahófið samhliða því að maður skráir sig í mótið. Ath. að upplagið er takmarkað, fyrstir koma fyrstir fá!

Athylgi er vakin á því að 3. flokkur karla leikur fyrsta hringinn á Mýrinni (2×9 holur) og Leirdal eftir það.
Keppendur sem hyggjast leika í fleiri en einum flokki, geta einungis gert það ef aukaflokkurinn nær ekki hámarksfjölda eftir að skráningu lýkur. 

Það verður mikið lagt upp úr því að gera Meistaramótið eins glæsilegt og frekast er unnt. Veitt verða nándarverðlaun á hverjum degi á 2. og 17. holu, jafnframt verða nándarverðlaun fyrir þann sem er næstur holu í tveimur höggum á 18. holu. Í barna- og unglingaflokkum 14 ára og yngri verða nándarverðlaun á 9. holu.

Staffið í Mulligan verða með allskyns góðgæti á boðstólum. Mótsstjórn hefur verið í góðu sambandi við veðurguðina og er að landa samningi um hið besta veður 

Allar nánari upplýsingar um eftirfarandi má finna á heimasíðu GKG, gkg.is

Birt með fyrirvara um breytingar.
Mótsstjórn GKG

Mynd. Sigurvegara meistarmóts GKG 2022

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar