Opið hús vegna kynningar á nýjum leikskóla við Skólatröð

Miðvikudaginn 19. október milli kl. 17 og 18:00 verður opið hús á bæjarskrifstofum Kópavogsbæjar vegna kynningar á nýjum leikskóla við Skólatröð.

Kynning á skipulagslýsingu vegna fyrirhugaðs nýs deiliskipulags leikskóla við Skólatröð stendur enn yfir í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Kynningargögn má nálgast á vefsíðu bæjarins og í þjónustuveri Kópavogsbæjar að Digranesvegi 1 frá kl. 8:30 til 16:00 mánudaga til fimmtudaga og á föstudögum frá 8:30 til 13:00.

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér tillöguna. Athugasemdir eða ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulagsdeildar umhverfissviðs, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á netfangið [email protected] eigi síðar en kl. 15:00 fimmtudaginn 27. október 2022.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar