Óður til Hamraborgarinnar

Föstudaginn 26. ágúst hefst Hamraborg Festival í annað sinn. Listahátíðin er óður til Hamraborgarinnar og vilja aðstandendur hennar meina að Hamraborgin sé eina raunverulega borgin á landinu, og öll önnur hverfi hvort sem þau eru í Reykjavík eða Kópavogi falli í skuggann á henni.

Í ár er margt á seyði. Viðburðum og listamönnum hefur fjölgað, en þátttakendur eru nú yfir sextíu talsins. Dans, leikhús, bókmenntir, lófalestur og óperur eru á hátíðinni, en myndlistin er eins og síðast fyrirferðamest. Enda ráku stofnendur hátíðarinnar sýningarrýmið Midpunkt um þriggja ára skeið í Hamraborg þar sem fjölmargar myndlistasýningar voru haldnar.

Hægt er að virða fyrir sér verk listamanna á hinum ýmsu stöðum, Kópavogssundlaug, Bókasafninu, Náttúrufræðistofu, Mjöll, Krónunni, Te&Kaffi, ÉgC, Euromarket og Catalínu svo dæmi séu nefnd. Í Y-gallery sýnir svo Berglind Jóna Hlynsdóttir, heiðurslistamaður hátíðarinnar en hún hefur um margra ára skeið rannsakað Hamraborgina í list sinni. Á Catalínu eru prentverk innblásin af Öræfunum eftir Evu Bjarnadóttur og listakonan Pola Sutryk verður með vinnustofu í að búa til listrænar brauðtertur. Á bókasafninu verða innsetningar, myndasögusýningar, dans-gjörningur og lófalestur. Allir íbúar Kópavogs geta fengið lófalestur í boði Freyju Eilífar og Jönu Napoli ef þeir samþykkja að gefa ljósmynd í gagnabanka. Á Gerðarsafni fara fram vinnustofur en líka danssýningin Plastik Man eftir Katie Hitchcock, og í anddyrinu á Salnum er hópurinn Silfurtungl með óperu sem ókeypis er inn á.

Myndirnar sem fylgja fréttinni eru frá hátíðinni í fyrra.

Það mætti telja lengi áfram, í Auðbrekkunni er hægt að heimsækjavinnustofur listamanna, og í ljósmyndastúdíóið Tan&Tar verður með sýninguna Dimmur Demantur opið einnig á sýningu. Þá má ekki gleyma gjörninga-tvíeykinu Dætur sem eru með opnunargjörning á Föstudaginn, eða 2×2 Rýmisskynjun sem bjóða gestum í sannkallaða ævintýraferð.

Einn af stóru viðburðum hátíðarinnar er útgáfa bókarinnar Með Hamraborgir á Heilanum, sem líkt og hátíðin er innblásin af Hamraborg. Fréttaljósmyndarinn Hákon Pálsson tók myndir bókarinnar en meðal höfunda má nefna Tyrfing Tyrfingsson, Kamillu Einarsdóttur og Eirík Örn Norðdahl.

Stjórnendur Hamraborg Festival eru Sveinn Snær Kristjánsson, Joanna Pawlowska, Ragnheiður Sigurðardóttir Bjarnarson og Snæbjörn Brynjarsson. Þau eru afar stolt af því hve margir frábærir listamenn hafa viljað taka þátt, og svo líka hversu vel íbúar og atvinnurekendur í Hamraborginni hafa tekið á móti þeim.

Hamraborgin lengi lifi! #HamraborgFestival

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar