Nemendur í Snælandsskóla gleðja börn í Úkraníu

Verkefnið Jól í skókassa felst í því að fá börn og fullorðna til þess að gleðja börn í Úkraínu.

Nemendur í 6. bekk Snælandsskóla fóru með „Jól í skókassa“ að Holtavegi 28 i húsi KFUM og KFUK í síðustu viku. Þetta er alþjóðlegt verkefni sem felst í því að fá börn og fullorðna til þess að gleðja börn í Úkraínu sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með því að gefa þeim jólagjafir sem settar eru í skókassa. KFUM og K sér síðan um að senda þá til Úkraínu.

Nemendur fengu góðar móttökur, farið var yfir skipulag verkefnsins og nemendur sáu bæði allar gjafirnar sem hafa borist og þær sem eru enn í undirbúningi. Faðir Evheniy Zhabkovskiy, aðalskipuleggjandi dreifingarinnar í Úkraínu, spjallaði við nemendurna.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar