Langtíma markmiðið er að íbúar tileinki sér heilbrigðari lífsstíl

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs og Edda Jónsdóttir framkvæmdastjóri Samhjálpar skrifuðu undir samning um áframhaldandi rekstur á áfangaheimili við Dalbrekku í Kópavogi núna í desember.

Áfangaheimilið tók til starfa í loks árs 2017 og geta alls átta karlar verið þar í búsetu.

Dalbrekka er hugsað sem tímabundið heimili þar sem íbúi fær einstaklingsmiðaða þjónustu sem felur í sér stuðning, leiðsögn, kennslu og eftirfylgd til að ástunda edrúmennsku og byggja upp bata, koma á rútínu í daglegu lífi og efla færni og getu til að takast á verkefni hvers dags. Langtíma markmiðið er að íbúar tileinki sér heilbrigðari lífsstíl, auki færni sína til þátttöku í venjubundnu lífi með virkni, launuðu starfi eða námi og öðlist færni til sjálfstæðrar búsetu.

Samráð og samstarf er viðhaft um málefni íbúa og hefur félagsráðgjafi velferðarsviðs reglubundna viðveru á heimilinu.

Samstarf Kópavogsbæjar við Samhjálp hefur verið farsælt og mjög góður árangur verið af starfi áfangaheimilisins.

Nýr samningur gildir til ársloka 2025.

Á myndinni eru frá vinstri, Tryggvi K. Magnússon, forstöðumaður áfangaheimilisins, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri og Edda Jónsdóttir framkvæmdastjóri Samhjálpar. 

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar