Daltún 1 er Jólahús Kópavogsbæjar 2023

Lista- og menningarráð Kópavogs stóð í ár í annað sinn fyrir leitinni að Jólahúsi Kópavogi. Að þessu sinni voru einnig valdar Jólagata og Fjölbýlishús ársins.

Þetta er svo skemmtilegt, það er svo dýrmætt að sjá alla þessa ljósadýrð á þessum myrkasta tíma ársins, segir ElísabetSveinsdóttir forseti Lista- og menningarráði Kópavogs. Þetta er annað árið sem við förum af stað með þessa nafnbót, mikilvægt að lyfta upp því sem vel er gert og svo nærir þetta jólaandan. 

Dómnefnd dæmdi út frá; samhengi við umhverfið, birtu og jólafíling/stemmingu. Dómarar voru sammála um að það er einstaklega gaman að keyra um bæinn og sjá fallegar skreytingar og  gaman að sjáhvernig þetta þróast ár frá ári. 

Jólahús Kópavogs 2023
Dalatún 1

Umsögn dómnefndar: Falleg kyrrð í ljósdýrðinni, umhverfið hjálpar vissulega til með þessum fallegu trjám sem umliggja húsið. Einföld litasamsetningin sveipar ákveðnum töfrablæ yfir húsið allt um kring. 

Múlalind

Jólagata Kópavogs 2023
Múlalindin 

Umsögn dómnefndar Það er nú ekki annað hægt en að komast í jólaskap þegar keyrt/gengið er inn í Múlalindina. Fyrstu tvö húsin er einstaklega vel og mikið skreytt, þau setja tóninn fyrir alla götuna sem sú jólalegasta í Kópavogi þetta árið.

Sunnusmári 24-26-28

Jólafjölbýlishús Kópavogs 2023
Sunnusmári 22 – 28

Umsögn dómnefndar: Mjög fallegt að sjá hversu samtaka nágrannarnir í Sunnusmáranum eru, það hafa allir sett eins seríu og verður heildarútkoman því einstaklega falleg. Birtan/bjarminn frá húsinu sést langar leiðir og verður fallegri því nær maður kemur að húsinu.  

Ljósmyndari er Anton Brink

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins