Kynlíf eftir barneignir á bókasafninu

Indíana Rós kynfræðingur spjallar við foreldra um kynlíf eftir meðgöngu og þau áhrif sem nýtt barn hefur á foreldra og samband þeirra á Bókasafni Kópavogs fimmtudaginn 19. október kl. 11.

Indíana Rós fjallar um breytta líkamsímynd eftir fæðingu og hvernig rækta má kynveru sína og finna aftur til kynlöngunar.

Foreldramorgnar eru frábært tækifæri fyrir foreldra og ung börn þeirra til að hittast og eiga rólega stund saman á safninu.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar