Hver ertu, helvítið þitt?

Bak við glerið eru þau Karl, taugaóstyrkur eignmaður Katrínar sem er kulnuð að rótum, ásamt Kjartani rafvirkja. Þar bíða þau færis að komast út og eru í stöðugu sambandi við boxarann Köru. Kara stendur í orustu við skuggann sjálfan, skepnuna sem fyrir utan.

Hver ertu, helvítið þitt? er leikið verk sem verður sýnt á Hamraborgarfestival á Sali Thai Restaurant laugardaginn 26. ágúst kl. 13:00.

Verkið leyfir áhorfandanum að sjá berum augum hvað gerist þegar skepnan innra með okkur raungerist í ytri heimum. Verkið fæst við kunnuglegt stef sem er vel kannað innan djúpsálarfræðinni. Inntak og fagurfræði verksins talar til tveggja kerfa, þess meðvitaða og þess ómeðvitaða og hreyfir við spurningunni um hið góða og illa.

Ingibjörg Magnadóttir vinnur einna helst með gjörningaformið í list sinni og hefur þróað leikhús-tengd verk, sem sameina svið gjörningsins, hefðbundins og tilraunakennds leikhúss. Hún skrifar sjálf handrit verka sinna, ýmist ein eða í samstarfi við aðra listamenn, og leggur áherslu á að sýningin sé heildarverk, þar sem sviðsmynd, búningar, texti, hreyfingar, hljóð eiga jafnan þátt í að skapa upplifunina.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar