Óhagstætt vaxta- og verðbólguumhverfi setja svip sinn á uppgjörið hjá Garðabæ

„Óhagstætt vaxta- og verðbólguumhverfi setja svip sinn á uppgjörið,“ segir Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar um nýtt árshlutauppgjör sem lagt var fyrir bæjarráð á þriðjudag. Samkvæmt sex mánaða uppgjöri  Garðabæjar er niðurstaða A hluta uppgjörsins neikvæð sem nemur 1.038 m.kr og niðurstaða A og B hluta neikvæð sem nemur 672 m.kr.

„Fjárhagsstaðan er traust og við búum vel að því. Tekjur af byggingarétti og gatnagerð munu styrkja afkomuna á seinni hluta ársins,“ segir Almar, en gatnagerðargjöld vegna hverfa sem eru í uppbyggingu verða ekki færðar til tekna fyrr en lagt hefur verið mat á framkvæmdastöðuna um áramót og þá voru samþykkt tilboð í byggingarrétt lóða í fyrsta hluta á Hnoðraholti sem nema um 2.000 m.kr og eru ekki færðar inn í þetta uppgjör. Stefnt er að úthlutun byggingarréttar í seinni hluta Hnoðraholts á haustmánuðum. Verðbólga og kjarasamningar hafa haft sitt að segja fyrir rekstrarumhverfi bæjarins. 
 
„Það er vaxandi áskorun að skila ásættanlegum rekstrartölum í grunnrekstri bæjarins. Það þarf að rýna það sérstaklega í fjárhagsáætlun 2024-2027,“ segir Almar en telur að staðan verði töluvert betri um áramót.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins