Fögnum þessu svo sannarlega – Verklok Arnarnesvegar áætluð haustið 2026

Fyrsta skóflustunga að þriðja áfanga Arnarnesvegar var tekin miðvikudaginn 23. ágúst af innviðaráðherra, Sigurðar Inga Jóhannssyni. Þriðji áfanginn er á milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar. Markmið fram-kvæmdanna er að auka umferðaröryggi, stytta ferðatíma og létta á umferð við Vatnsendaveg. Áætluð verklok eru haustið 2026.

Um er að ræða 1,9 kílómetra vegkafla frá Rjúpnavegi að Breiðholtsbraut, tvö hringtorg, tvenn undirgöng, tvær brýr fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og samtals 2,5 kílómetra göngu- og hjólastígar.

Verkið er fjármagnað af Samgöngusáttmálanum, sem gerður var 2019 milli ríkisins og sveitarfélaganna sex á höf- uðborgarsvæðinu, þar sem markmiðið er m.a. að stuðla að auknu umferðaröryggi, hagkvæmum, greiðum og skilvirkum samgöngum á höfuðborgarsvæðinu með jafnri uppbyggingu innviða allra

Fögnum þessu svo sannarlega

,,Það er mikilvægur áfangi að framkvæmdir séu hafnar við Arnarnesveg. Bæði mun létta á umferð í efri byggðum í Kópavogi auk þess sem vegurinn er afar mikilvægur út frá öryggissjónarmiðum. Við í Kópavogi fögnum þessu svo sannarlega,” segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs.

Mun létta á umferð við Vatnsendaveg

„Það er ánægjulegt að framkvæmdir á Arnarnesvegi séu hafnar því þessi nýja leið mun létta á umferð við Vatnsendaveg og stytta ferðatíma fólks. Auk þess munu undirgöng, brýr og göngu- og hjólastígar verða mikill samgöngubót og stórt umferðaröryggismál fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur,” segir Sigurður Ingi Jóhannsson.

Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Reykjavíkur, Kópavogs, Betri samgangna ohf., Veitna og Mílu. Verk- takar eru Loftorka og Suðurverk. Eftirlit er í höndum VSB.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar