Verður sett upp stytta af kettinum Sushi á Garðatorgi?

Betri Garðabær er lýðræðisverkefni þar sem íbúar leggja fram hugmyndir að framkvæmdum sem þeir vilja sjá í Garðabæ. Hugmyndasöfnunin er opin og stendur hún til 4. febrúar 2024, en áætlað er að um 100 milljónir króna verði settar í framkvæmdirnar.

Garðabæingar eru nokkuð hugmyndaríkir en alls eru komin 141 hugmynd inn á Betri Garðabæ og voru þær að öllum toga og gerðum, sumar mjög áhugaverðar og skemmtilegar. Hér kemur ein skemmtileg hugmynd frá íbúa í Garðabæ.

Setja upp styttu af Sushi á Garðatorgi

,,Kötturinn Sushi þekkja allir Garðbæingar. Hún veitir okkur félagsskap hvort sem við erum í skólanum, að versla eða í sundi. Hún á skilið fallega styttu til að heiðra hana og þakka henni fyrir gleðina sem hún færir öllum sem hitta hana.“

Ert þú með hugmyndin að betri bæ? Hægt er að setja inn hugmyndir til og með 4. febrúar. Hægt að klikka á augl. frá Garðabæ efst á síðunni, Betri Garðbær.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar