Þrjár opnanir í Hönnunarsafni Íslands 6. október

Þrjár flottar sýningar verða opnaðar í Hönnunarsafni Íslands við Garðatorgi föstudaginn 6. október kl. 17.

Sýning á Pallinum
Dolinda Tanner
Keramik og veflistaverk

Það var ævintýraþráin sem dró Dolindu Tanner (1923 – 1967) fyrst til Íslands. Vinaböndin, náttúran, ástin og listin urðu til þess að hún ílentist hér.

Dolinda var fædd og uppalin Sviss. Hún nam myndlist í listaháskólunum í Genf og Basel. Eftir námið þráði hún að sjá sig um og ferðast og dvaldi í Bretlandi og Svíþjóð áður en hún kom til Íslands árið 1948. Þar kynnist Dolinda hjónunum Gesti Þorgrímssyni og Sigrúnu Guðjónsdóttur (Rúnu) sem fengu Dolindu og Waistel Cooper, skoskan listamann, í lið með sér við að byggja upp Laugarnesleir. Ekkert þeirra hafði grunn í keramiki en þau létu það ekki á sig fá.

Dolinda hafði góða innsýn í miðevrópskar hefðir og vann undir áhrifum módernismans. Pablo Picasso er greinilegur áhrifavaldur og þaðan koma mögulega líka afrísku áhrifin sem skynja má í mörgum verkum Dolindu. Í verkum hennar koma saman fögur litapalletta, geometrísk og fíguratíf form og hlutir sem geisla af sköpunargleði.
Sýningarstjóri: Sigríður Sigurjónsdóttir.

Safnið á röngunni
Skráning á teikningum eftir Lothar Grund
(sjá forsíðumynd)

Lothar Grund (1923 – 1995) var þýskur leiktjaldamálari sem flutti til Íslands árið 1950 og bjó hér til ársins 1963. Á Íslandi vann hann meðal annars sem leiktjaldamálari, innanhússarkitekt og við að teikna auglýsingar. Frá 1961 til 1963 vann Lothar sem innanhússarkitekt fyrir Hótel Sögu og hannaði innréttingar fyrir herbergi og sali hótelsins.

Árið 2022 fékk Hönnunarsafn Íslands að gjöf frá fjölskyldu Lothars teikningar og gögn frá tímabilinu þegar hann vann fyrir Hótel Sögu. Eru þetta meðal annars frumteikningar af herbergjum, tillögur að sölum og auglýsingar fyrir Hótelið. Einnig fylgdu gjöfinni auglýsingateikningar fyrir hin ýmsu fyrirtæki.
Umsjón með skráningunni hefur Bóel Hörn Ingadóttir.

Hönnunarsafnið sem heimili

Sýningin opnar nú í heild sinni eftir viðgerðir á þaki. Um 200 munir úr safneign-inni eru settir fram sem grunnmynd af heimili.

Sýningarstjórar: Anna Dröfn Ágústsdóttir, Arnar Freyr Guðmundsson, Birna Geirfinnsdóttir og Sigriður Sigurjónsdóttir

Samtímis verður opnuð ný heimasíða safnsins: www.honnunarsafn.is

Hönnuðir: Studio Studio í samstarfi við Kolofon

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar