Leigjendur í póstnúmeri 210 í Garðabæ greiða að meðaltali 276 þúsund kr. í leigu á mánuði

Meðalleiguverð á höfuðborgarsvæðinu var þriðja hæst í póstnúmeri 210 í Garða- bæ í fyrra, en í því sama póstnúmeri voru íbúðir til leigu jafnframt stærri en annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Aðeins íbúðir í póstnúmeri 203 í Kópavogi voru stærri en í 210 Garðabæ. Leiguverðið á hvern fermetra var hins vegar hæst í Vest- urbænum, en póstnúmer 210 var þar í 15. sæti af 18 póstnúmerum á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í upplýsingum sem HMS hefur unnið upp úr nýrri leigu- skrá. Þess ber að geta að HMS virðist ekki hafa skoðað leigumarkaðinni á Álftanesi, í póstnúmeri 225.

Leiguskráin, sem er hluti af Húsnæðisgrunni HMS, geymir hún nú um 21.000 samninga og heldur utan um rafræna skráningu leigusamninga. Hún hefur það að markmiði að bæta upplýsingar um leigumarkaðinn, þróun leiguverðs og lengd leigusamninga og mun hún nýtast stjórnvöldum við stefnumótun í húsnæðismálum.

Leiguverð 3.009 kr. á fermetir í Garðabæ

Lesa má úr gögnum leiguskrár að meðalleiga á hvern fermetra á höfuðborgar- svæðinu er sú fjórða lægsta í póstnúmeri 210 Garðabær eða 3.009 kr. Aðeins póstnúmeri 103 í Reykjavík og 201 og 203 í Kópavogi er leiguverð lægra en í Garðabæ eða undir 3.000 kr. á fermetra. Meðalleiga er hæst í póstnúmeri 107 eða rúmlega 4.200 kr. og er fermetraverð þar 13-16% hærra en í póstnúmerum 101, 102 og 105 sem koma þar á eftir.

Heildarfjárhæð greiddrar leigu er næst hæst í póstnúmeri Garðabæ

Heildarfjárhæð greiddrar leigu er hins vegar hæst í póstnúmeri 203, þar sem leigjendur greiða að meðaltali 293 þúsund krónur á mánuði, en í Garðabæ er hún þriðja hæst eða tæpar 296 þúsund krónur. Til samanburðar er meðalleiga í póstnúmeri 107, 207 þúsund krónur á mánuði. Í póstnúmeri 203 má einnig finna stærstu leiguíbúðirnar, en að meðaltali eru þær um 108 fermetrar og í Garðabæ er að finna næst stærstu leiguíbúðirnar, að meðaltali 105 fermetrar, samanborið við 59 fermetra meðalstærð í póstnúmeri 107, líkt og sjá má á myndinni. Líkt og myndin gefur til kynna er stærð leiguhúsnæðis ráðandi þáttur í leiguverði á höfuðborgarsvæðinu. Staðsetning leiguhúsnæðisins hefur þó einnig áhrif, en meðalleiguverð á hvern fermetra er hærra í póstnúmerum sem eru nálægt miðbæ Reykjavíkur.

Ef litið er til höfuðborgarsvæðisins í heild sinni nemur miðgildi leiguverðs á hvern fermetra 3.269 kr. sem er 17% hærra en miðgildi fermetraverðs í nágrenni höfuðborgarsvæðisins.

Annars staðar á landinu var miðgildi verðs á leigu rétt rúmlega 2.000 kr. á fermetra. Sjá má marktækan mun á verði á fermetra eftir stærð íbúða og er það t.d. yfir 3.500 kr. fyrir tveggja herbergja íbúð á höfuð- borgarsvæðinu en undir 2.500 kr. fyrir fjögurra herbergja íbúð á sama svæði.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar