Garðabær hvetur íbúa til að fagna fjölbreytileikanum í tilefni Hinsegin daga 2023 og sýna þannig mannréttindabaráttu hinsegin samfélagsins mikilvægan stuðning.
Hinsegin dagar vaxið og dafnað síðustu ár og eru í dag ein fjölsóttasta hátíð landsins, en Hinsegin dagar er haldnir 8.-13. ágúst.
Ánægja með fræðslu Samtakanna ‘78
Í lok síðasta árs skrifuðu Garðabær og Samtökin ‘78 um samstarfssamning um þjónustu samtakanna við bæinn. Markmiðið með slíkum samning er að stórefla hinsegin fræðslu og meðvitund um hinsegin málefni í sveitarfélaginu en á sama tíma að styðja við það fræðslustarf um hinsegin málefni sem nú þegar er unnið á vinnustöðum og skólum Garðabæjar.
Samningurinn kveður á um að Samtökin ´78 veiti Garðabæ þjónustu gegn ákveðnu fjárframlagi fyrir nokkra þjónustuþætti, til að mynda:
- Fræðslu til starfsfólks grunnskóla í Garðabæ
- Fræðslu til nemenda grunnskóla í Garðabæ
- Fræðslu til stjórnenda sem vinna hjá Garðabæ
- Endurgjaldlausa ráðgjöf Samtakanna ´78 til ungmenna í Garðabæ
- Fræðslu til starfsfólks leikskóla í Garðabæ
- Fræðslu til félags- og frístundamiðstöðva í Garðabæ
Nú þegar hafa fjölmargir skólastarfsmenn og nemendur í Garðabæ fengið fræðslu frá Samtökunum ’78.
Þorgerður Anna Arnardóttir skólastjóri Urriðaholtsskóla segir mikla ánægju hafa verið með fræðsluna hjá þeim. „ Það var mikil ánægja með námskeiðið sem studdi svo sannarlega við starfsfólk skólans. Í Urriðaholtsskóla er unnið markvisst að fræðslu hinseginleikans og gaman að geta þess að tveir kennarar við skólann fengu styrk úr rannsóknarsjóði Kennarasambandsins í tengslum við að rannsaka og efla hinsegin fræðslu fyrir 1-10 bekk.“
Markmið verkefnisins sem Urriðaholtsskóli fékk samþykkt eru að koma á fót heildstæðri hinsegin fræðslu í Urriðaholtsskóla, að kanna hvort draga megi úr fordómum nemenda með öflugri hinsegin fræðslu og að efla hinsegin nemendur skólans. „Við ráðgerum við að byggja ofan á þá fræðslu sem skólasamfélagið hefur fengið með áframhaldandi samstarfið við Samtökin 78,“ segir Þorgerður Anna.